{"product_id":"bluetti-rv5-rafkerfi-fyrir-husbila","title":"Bluetti RV5 rafkerfi fyrir húsbíla – 5.000 W – 48 V","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eBluetti RV5\u003c\/strong\u003e er heildstætt 48 V rafkerfi fyrir húsbíla, hjólhýsi, vinnubíla, báta og sumarhús sem ekki eru tengd rafveitu. Í einu tæki er 5.000 W inverter, hleðslutæki fyrir landrafmagn, sólarsellustýring, hleðsla frá alternator og stöðugt 12\/24 V úttak. Í stað þess að raða saman fimm eða sex aðskildum tækjum og tengja þau með löngum köplum færðu eitt snyrtilegt kerfi sem stýrt er úr síma eða af snertiskjá.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003eHentar þér ef...\u003c\/h2\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eþú vilt nota kaffivél, örbylgjuofn eða rafmagnsofn í húsbílnum án þess að vera tengdur við rafmagn á tjaldsvæði.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eþú ert að innrétta nýjan húsbíl, vinnubíl eða hjólhýsi og vilt eitt heildstætt rafkerfi í stað margra tækja.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eþú átt sumarhús eða veiðikofa utan rafveitu og vilt sólarorku, rafgeyma og 230 V rafmagn eins og heima.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eþú vilt að bíllinn hlaði rafgeymana sjálfkrafa á akstri og sólin á daginn.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eEf þú þarft bara rafmagn í útilegu og vilt ekkert setja upp hentar færanlegur orkubanki betur, t.d. \u003ca href=\"\/products\/bluetti-elite200-v2-orkubanki-2700w\"\u003eBluetti Elite 200 V2\u003c\/a\u003e.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003ch2\u003eNokkur hugtök á mannamáli\u003c\/h2\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eW (vött)\u003c\/strong\u003e segja til um afl, þ.e. hversu öflugt tæki má tengja í einu. 5.000 W þýðir að RV5 ræður við nokkur orkufrek tæki samtímis.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eWh (vattstundir)\u003c\/strong\u003e segja til um orkumagn í rafgeymi. 5.000 Wh duga t.d. fyrir 50 W ísskáp í um 100 klukkustundir.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eInverter\u003c\/strong\u003e breytir jafnstraumi rafgeymanna í venjulegt 230 V heimilisrafmagn.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eMPPT\u003c\/strong\u003e er snjöll sólarhleðslustýring sem nær hámarksorku úr sólarsellunum, líka þegar skýjað er.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eUPS\u003c\/strong\u003e (órofið varaafl) þýðir að tækin halda áfram að ganga án þess að slokkni á þeim ef landrafmagn rofnar.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eLiFePO4\u003c\/strong\u003e (litíum járnfosfat) er örugg og endingargóð gerð af litíum rafhlöðu sem þolir þúsundir hleðslulota.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003ch2\u003eHelstu kostir\u003c\/h2\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003e5.000 W hreinn sínusbylgju inverter\u003c\/strong\u003e sem ræður við kaffivél, örbylgjuofn, spanhellu og rafmagnsofn. Hrein sínusbylgja er sama gæðarafmagn og úr veggnum heima, svo viðkvæm raftæki fara ekki illa.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eÞrjár hleðsluleiðir:\u003c\/strong\u003e allt að 5.000 W úr landrafmagni eða rafstöð, allt að 1.800 W frá sólarsellum og allt að 1.200 W frá alternator á meðan ekið er.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eEnginn sér DC\/DC hleðslustýring\u003c\/strong\u003e fyrir alternatorinn, RV5 sér um það sjálft.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eVirkar sem UPS:\u003c\/strong\u003e skiptir yfir á rafgeyma á 20 ms eða skemur ef landrafmagn dettur út.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003e48 V hönnun\u003c\/strong\u003e þýðir lægri straum, grennri kapla og minna orkutap en í 12 V kerfi af sömu stærð.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eAðeins 7 W eigin notkun\u003c\/strong\u003e í biðstöðu, svo kerfið étur ekki upp rafgeymana þegar bíllinn stendur.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eVöktun í appi og á Epad skjá\u003c\/strong\u003e, ásamt 5 ára ábyrgð.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003ch2\u003eHvernig vinnur RV5 kerfið saman?\u003c\/h2\u003e\u003cp\u003eRV5 er hannað sem miðja í svokölluðu RVSolar kerfi Bluetti. Hægt er að byrja smátt með RV5 og einum rafgeymi og bæta svo við tengitöflu og stjórnborði:\u003c\/p\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eRV5 rafkerfi (Power Hub)\u003c\/strong\u003e er hjarta kerfisins. Það breytir 48 V jafnstraumi í 230 V riðstraum, hleður rafgeymana úr landrafmagni, sólarsellum og alternator bílsins og skilar stöðugum 12 V eða 24 V fyrir ljós, dælur og annan jafnstraumsbúnað.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eB4810 neyslurafgeymir\u003c\/strong\u003e (51,2 V, 5.120 Wh) er orkugeymsla kerfisins og talar beint við RV5 um CAN samskipti. Hægt er að bæta við rafgeymum eftir þörfum.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eEpanel tengitafla\u003c\/strong\u003e tekur við 230 V og 12\/24 V frá RV5 og dreifir á allt að 8 riðstraumsrásir og 20 jafnstraumsrásir með öryggjum. Hægt er að kveikja og slökkva á völdum rásum úr appinu.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eEpad stjórnborð\u003c\/strong\u003e er 10,1 tommu snertiskjár sem sýnir allt kerfið á einum stað: hleðslu, notkun, sólarorku, hitastig og vatnsstöðu í tönkum.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003cstrong\u003eB1210 og B1232\u003c\/strong\u003e eru 12,8 V neyslurafgeymar úr sömu línu, ætlaðir fyrir hefðbundin 12 V kerfi eða til að raða saman í 24 V og 48 V bankar.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003cp\u003eLágmarksuppsetning er RV5 og einn B4810 rafgeymir. Algeng heildaruppsetning í stærri húsbíl eða sumarhúsi er RV5, tveir B4810, Epanel og Epad.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003eHvað getur RV5 keyrt?\u003c\/h2\u003e\u003cp\u003eÁætlaður keyrslutími með \u003cstrong\u003eeinum B4810\u003c\/strong\u003e rafgeymi (um 4.350 Wh nýtanleg orka, reiknað með tapi í inverter). Raunverulegur tími fer eftir tækjum, hitastigi og hleðslu frá sól eða akstri. Tveir rafgeymar tvöfalda tímann.\u003c\/p\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eÍsskápur í húsbíl (um 50 W að meðaltali): um 80 klst.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eCPAP öndunarvél (um 40 W): um 100 klst, eða yfir 10 nætur.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eFartölva (um 60 W): um 65 klst.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSjónvarp (um 80 W): um 50 klst.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eKaffivél (um 1.200 W): um 3 klst samfelld notkun, sem dugar í tugi bolla.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSpanhella (um 1.800 W): um 2 klst.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eRafmagnsofn (um 2.000 W): um 2 klst.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003cp\u003eAllar tölur eru áætlun.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003eTæknilýsing\u003c\/h2\u003e\u003ctable\u003e\u003ctbody\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eGerð\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eBluetti RV5 Power Hub\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eAC úttak\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e230 V hrein sínusbylgja, 5.000 W samfellt\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eDC úttak\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e12 V eða 24 V stöðugt, 100 A við 12 V (1.360 W) eða 60 A við 24 V (1.620 W)\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eSamanlagt AC og DC álag\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eAllt að 6.000 W, háð gerð og fjölda rafgeyma\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eHleðsla úr landrafmagni\/rafstöð\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eAllt að 5.000 W (230 V AC), takmarkast af straumi rafgeymis\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eSólarsellur\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eAllt að 1.800 W, 12-50 V, 50 A (MPPT)\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eAlternator \/ bílrafgeymir\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e600 W við 12 V eða 1.200 W við 24 V, 50 A\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eRafgeymakerfi\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e48 V, hannað fyrir Bluetti B4810 LiFePO4 rafgeyma\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eSkiptitími (UPS)\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e20 ms eða minna\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eEigin notkun í biðstöðu\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e7 W\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eStýring\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eBluetti app og Epad snertiskjár\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eRakavörn\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eIP65\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eVottun\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eUL458\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eRekstrarhiti\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e-20 °C til 45 °C (skert afl 45 til 55 °C)\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eGeymsluhiti\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e-20 °C til 55 °C\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eHámarksraki\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e95%\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eÞyngd\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003eUm 14 kg\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eMál\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e450 × 500 × 159,9 mm\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003ctr\u003e\n\u003ctd\u003e\u003cstrong\u003eÁbyrgð\u003c\/strong\u003e\u003c\/td\u003e\n\u003ctd\u003e5 ár\u003c\/td\u003e\n\u003c\/tr\u003e\n\u003c\/tbody\u003e\u003c\/table\u003e\u003ch2\u003eÍ kassanum\u003c\/h2\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eBluetti RV5 Power Hub\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eBorsniðmát fyrir uppsetningu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e8 × M8 viðarskrúfur og 8 × tappar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eNotendahandbók\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003cp\u003eRafgeymar, tengitafla og stjórnborð eru seld sér.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003eAlgengar spurningar\u003c\/h2\u003e\u003ch3\u003eGet ég sett RV5 upp sjálf(ur)?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eKerfið er hannað til að vera einfalt í uppsetningu með merktum tengjum og tilbúnum köplum. Tenging við 230 V raflagnir í húsbíl eða sumarhúsi á þó alltaf að vera í höndum löggilts rafverktaka. Við getum bent á aðila sem þekkja búnaðinn.\u003c\/p\u003e\u003ch3\u003eHvaða rafgeyma get ég notað með RV5?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eRV5 er 48 V kerfi og er hannað fyrir Bluetti B4810 rafgeyminn, sem talar beint við RV5 um CAN samskipti svo hleðsla og vernd stillast sjálfkrafa. Hægt er að tengja marga B4810 samsíða til að auka rýmd. Ef þú ert með önnur 48 V kerfi í huga skaltu hafa samband áður en þú pantar.\u003c\/p\u003e\u003ch3\u003eHvaða sólarsellur passa við RV5?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eOpin spenna (Voc) á hvern sólarselluinngang má ekki fara yfir 50 V. Í kulda hækkar spennan, svo best er að tengja sellur samsíða frekar en í röð. Bluetti PV100 hefur um 24,6 V opna spennu og hentar vel samsíða.\u003c\/p\u003e\u003ch3\u003eVirkar RV5 sem varaafl (UPS)?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eJá. Þegar RV5 er tengt landrafmagni fer straumurinn í gegn til tækjanna, og ef rafmagnið fer skiptir kerfið yfir á rafgeymana á 20 ms eða skemur. Flest tæki taka ekki eftir skiptunum.\u003c\/p\u003e\u003ch3\u003eMá nota RV5 í frosti?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eRV5 vinnur á bilinu -20 °C til 45 °C. B4810 rafgeymarnir eru með innbyggða hitun sem heldur þeim í réttu hitastigi fyrir hleðslu þegar kalt er í veðri, sem skiptir miklu máli við íslenskar aðstæður.\u003c\/p\u003e\u003ch3\u003eÞarf ég sérstakt hleðslutæki fyrir alternatorinn?\u003c\/h3\u003e\u003cp\u003eNei. RV5 er með innbyggða hleðslu frá alternator (600 W við 12 V, 1.200 W við 24 V) og takmarkar strauminn sjálft, svo ekki þarf sérstakan DC\/DC hleðslustýri.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003ePassar vel með\u003c\/h2\u003e\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003ca href=\"\/products\/bluetti-b4810-neyslurafgeymir\"\u003e\u003cstrong\u003eBluetti B4810 neyslurafgeymir\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e: 48 V rafgeymirinn sem RV5 er hannað fyrir. Þú þarft að minnsta kosti einn.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003ca href=\"\/products\/bluetti-rv5-epanel\"\u003e\u003cstrong\u003eBluetti Epanel tengitafla\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e: dreifir 230 V og 12\/24 V á einstakar rásir og gerir þér kleift að stýra þeim úr appi.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003ca href=\"\/products\/bluetti-rv5-stjornbord\"\u003e\u003cstrong\u003eBluetti Epad stjórnborð\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e: snertiskjár á vegg sem sýnir allt kerfið, tanka og hitastig.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003ca href=\"\/products\/bluetti-pv100-solarsella\"\u003e\u003cstrong\u003eBluetti PV100 sólarsella\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e: 100 W sólarsella sem hleður kerfið á daginn.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\n\u003ca href=\"\/products\/bluetti-pv200-solarsella-1\"\u003e\u003cstrong\u003eBluetti PV200 sólarsella\u003c\/strong\u003e\u003c\/a\u003e: stærri sólarsella fyrir þá sem vilja meiri sólarorku.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\u003cp\u003eSkoðaðu allt \u003ca href=\"\/collections\/bluetti\"\u003eBluetti úrvalið hjá Dalberg\u003c\/a\u003e, orkubanka, sólarsellur, rafgeyma og snúrur.\u003c\/p\u003e\u003ch2\u003ePantaðu eða fáðu ráðgjöf\u003c\/h2\u003e\u003cp\u003eViltu losna við rafmagnsáhyggjur á ferðalögum? Pantaðu RV5 hér á síðunni eða hringdu í okkur. Við hjálpum þér að velja réttan fjölda rafgeyma og sólarsella miðað við þína notkun, svo kerfið passi frá fyrsta degi.\u003c\/p\u003e\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eDalberg\u003c\/strong\u003e, Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík. Við sendum um allt land. Sími \u003cstrong\u003e554 1888\u003c\/strong\u003e, netfang \u003cstrong\u003einfo@dalberg.is\u003c\/strong\u003e.\u003c\/p\u003e","brand":"Bluetti","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":68245853864148,"sku":null,"price":359900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0711\/6416\/6356\/files\/bluetti-rv5-rafkerfi-fyrir-husbila-1.png?v=1793453578","url":"https:\/\/dalberg.is\/products\/bluetti-rv5-rafkerfi-fyrir-husbila","provider":"Dalberg.is","version":"1.0","type":"link"}