Burstamottur
Burstamottur eru sterkustu motturnar við útidyr. Burstarnir ná sandi, möl og snjó úr skósólunum áður en komið er inn, svo minna berst inn á gólfin og síður verður hált innan við dyrnar. Dalberg selur burstamottur frá Geggus í Þýskalandi, framleiddar eftir máli fyrir hvert anddyri.
Fá tilboð og fría mælingu | Sími 554 1888
Af hverju burstamotta?
- Hreinsar betur en gúmmí eitt og sér. Burstarnir ná inn í mynstrið á skósólunum og losa það sem situr fast.
- Opið kerfi. Sandur, möl og vatn falla niður á milli prófílanna í stað þess að liggja á yfirborðinu.
- Þolir íslenskan vetur. Burstar og gúmmí þola snjó, bleytu og hálkusand.
- Verndar gólfin. Sandur virkar eins og sandpappír á gólfefni. Því meira sem stöðvast við dyrnar, því minna slit og minni þrif.
Burstamottur frá Geggus
- Top Clean BRUSH – burstalistar sem gefa hámarks hreinsun og taka vel við óhreinindum. Fyrir venjulega umferð inni og úti.
- Top Clean NOVA XL – gúmmí- eða ripsprófíll ásamt þremur burstalistum. Mikil hreinsigeta fyrir stóra fleti.
- Kassettuburstar – þéttir burstar í kössum, sterkir og góðir úti. Fást sem innlegg í TREND, STABIL og fleiri álprófílmottur.
- WAVE-innlegg – burstandi innlegg úr 100% pólýamíði fyrir mikið álag utandyra, t.d. TREND WAVE, STABIL WAVE og CLASSIC WAVE.
Burstalistar fást í svörtu, gráu og bláu og má blanda saman við gúmmí og ripsteppi í sömu mottu.
Hvar hentar burstamotta?
Burstamotta á best heima fremst, úti eða í forstofu, þar sem grófu óhreinindin koma inn. Fyrir innan tekur svo við ripsteppi eða textíll sem dregur í sig bleytu og fínt ryk. Þannig verða til þrjú hreinsisvæði sem stöðva allt að 94% af óhreinindunum við innganginn.
- Skólar, leikskólar og íþróttahús
- Verslanir og verslunarmiðstöðvar
- Skrifstofuhús, stofnanir og fjölbýlishús
- Hótel, veitingastaðir og sundlaugar
Algengar spurningar
Hvað kostar burstamotta?
Verðið fer eftir stærð, gerð og því hvort mottan fer í gryfju eða ofan á gólf. Við mælum anddyrið frítt og sendum tilboð.
Þarf gryfju fyrir burstamottu?
Álprófílmotturnar eru lagðar í gryfju svo þær eru sléttar við gólfið. Ef engin gryfja er til eru til mottur sem lagðar eru ofan á gólfið.
Hvernig eru burstamottur þrifnar?
Óhreinindin falla niður undir mottuna. Mottunni er lyft upp og hreinsað undir henni eftir þörfum. Við förum yfir umhirðuna við afhendingu.
Hversu lengi endast þær?
Geggus veitir 5 ára ábyrgð á mottukerfum sínum og hefur framleitt mottur síðan 1947.
Fáðu tilboð og fría mælingu
Sendu okkur línu og við komum, mælum anddyrið og sendum tilboð. Einnig hægt að hringja í 554 1888 eða senda póst á sala@dalberg.is.
