Frá gangstétt
upp á þak

Stigar, inngangsmottur, aðgangslok og frárennslisrennur fyrir byggingar og innviði. Staðlaðar lausnir og sérsmíði eftir teikningum, frá fimm evrópskum framleiðendum.

Sniðmynd af byggingu sem sýnir hvar stigar, inngangsmottur, aðgangslok og frárennslisrennur eru notuð Stigar og flóttastigar Jomy og Stegerud Inngangsmottukerfi Geggus Aðgangslok og brunnar FSP Frárennslisrennur ULMA
JomyBelgíu
StegerudNoregi
GeggusÞýskalandi
FSPBretlandi
ULMASpáni
Stigar og flóttastigar frá Jomy og Stegerud

Stigar og flóttastigar

Jomy (Belgíu) og Stegerud (Noregi)

Álstigar frá Jomy og stálstigar frá Stegerud: fellistigar og flóttastigar, stigar með búri eða öryggislínu, svalastigar, pallastigar, hringstigar og brunnstigar. Í stærri verkefnum er stiginn sérsmíðaður eftir teikningum og aðstæðum.

Hentar fyrir fjölbýlishús, skóla, iðnaðarhús og þakaðgengi.

Skoða stiga og flóttastiga
Geggus inngangsmottukerfi í anddyri

Inngangsmottukerfi

Geggus (Þýskalandi)

Gryfju- og burstamottur sem stöðva óhreinindi og bleytu við dyrnar, áður en þau berast inn á gólfin. Kerfið er hannað í þremur svæðum, fyrir möl og sand, yfirferð og fín óhreinindi, og sniðið að hverju anddyri.

Við komum með sýnishorn og Geggus-kynningarbókina á stofuna eða verkstaðinn.

Skoða inngangsmottur
Aðgangslok og stállausnir frá FSP

Aðgangslok og stállausnir

Fabweld Steel Products, FSP (Bretlandi)

Aðgangs- og brunnlok, raufarennur, ristar, brunnstigar, handrið og öryggishurðir fyrir gatna-, veitu- og innviðaverkefni. Framleitt samkvæmt ISO 9001 og BS EN 1090 og margar vörurnar eru Kitemark-vottaðar.

Skoða lausnir frá FSP
ULMA frárennslisrennur

Frárennslisrennur

ULMA (Spáni)

Polymerbeton- og raufarennur með ristum úr steypujárni, galvaniseruðu eða ryðfríu stáli. Hannaðar samkvæmt EN 1433, í álagsflokkum frá A15 upp í F900.

Hentar fyrir lóðir, bílastæði, gangstéttar, vöruhús og hafnarsvæði.

Skoða ULMA frárennslisrennur
Forsíða bæklings

Allt úrvalið í einum bæklingi

Yfirlit yfir stiga, inngangsmottur og aðgangslausnir sem við bjóðum.

Skoða bæklinginn

Hvernig við aðstoðum

Arkitektar

Tillögur og verðhugmyndir á hönnunarstigi, tæknigögn og texti í verklýsingu. Sýnishorn og kynningarbækur á stofuna.

Verkfræðingar

Tæknigögn, álagsflokkar og vottanir, og aðstoð við val á lausn sem stenst kröfur verksins.

Verktakar

Verð út frá teikningum eða magnskrá, líka fyrir útboð sem eru í gangi. Sendum um allt land.

Svona fáið þið verð

  1. Sendið okkur teikningar, magnskrá eða stutta lýsingu á verkinu.
  2. Við förum yfir verkið með framleiðanda og skilum tillögu og verði innan 3 virkra daga.
  3. Pöntun, framleiðsla og afhending. Sendum um allt land.

Teikningar og magnskrár má senda beint á sala@dalberg.is eða hringja í 554 1888.

Takk, fyrirspurnin er komin til okkar. Við höfum samband fljótlega.