Vöruflokkar

Hjartastuðtæki
14 vörur
Sýnir 1–14 af 14 vöru
Hjartastuðtæki fyrir vinnustaði, skóla og heimili
Um 200 manns fara í hjartastopp utan sjúkrahúsa á Íslandi á hverju ári. Í hverri mínútu sem líður án rafstuðs minnka lífslíkur verulega, og sjúkrabíll er oft lengur á leiðinni en það. Hjartastuðtæki (AED) á réttum stað gerir hverjum sem er kleift að bjarga lífi áður en sjúkralið mætir.
Dalberg hefur selt öryggis- og heilbrigðisvörur á Íslandi í yfir 20 ár. Við bjóðum hjartastuðtæki á góðu verði, skápa, merkingar og áfyllingar, allt á einum stað.
Hvort tækið hentar þér?
| Amoul i3 | Amoul i5 | |
|---|---|---|
| Verð | 173.000 kr. | 223.000 kr. |
| Gerð | Hálfsjálfvirkt | Hálfsjálfvirkt með LCD-skjá |
| Hentar best | Skrifstofum, verslunum, húsfélögum og minni vinnustöðum | Íþróttamannvirkjum, skólum, stærri vinnustöðum og þeim sem vilja sjá leiðbeiningar á skjá |
| Raddleiðbeiningar | Íslenska, Enska, Pólska | Íslenska, Enska, Pólska |
Allt sem þarf á einum stað
- Hjartastuðtæki – einföld í notkun, tækið leiðbeinir þér skref fyrir skref.
- Skápar – fyrir innan- og utanhússnotkun, með eða án viðvörunar og hitastýringar.
- Skilti – svo allir sjái strax hvar tækið er.
- Rafskaut og rafhlöður – við höldum utan um fyrningardaga og minnum þig á þegar þarf að endurnýja.
Hverjir ættu að hafa hjartastuðtæki?
Fyrirtæki og vinnustaðir, skólar og leikskólar, íþróttafélög og líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, hótel og gististaðir, verslanir og verslunarmiðstöðvar, fjölbýlishús og húsfélög, kirkjur og samkomuhús, skip og vinnusvæði úti á landi.
Algengar spurningar
Hvað kostar hjartastuðtæki?
Hjartastuðtæki hjá Dalberg kosta frá 173.000 kr. Við gerum tilboð í pakka með skáp og skilti og veitum magnafslátt fyrir fleiri tæki. Sjá nánar um verð og heildarkostnað.
Þarf námskeið til að nota hjartastuðtæki?
Nei. Tækið segir notandanum nákvæmlega hvað á að gera. Við mælum samt með skyndihjálparnámskeiði fyrir starfsfólk, það eykur öryggi og sjálfstraust. Svona notar þú hjartastuðtæki, skref fyrir skref.
Hvað þýðir hálfsjálfvirkt?
Tækið greinir sjálft hjartsláttinn og metur hvort þörf er á rafstuði. Ef svo er, biður það notandann að ýta á takka. Tækið gefur aldrei stuð nema þess sé þörf.
Hversu lengi endast rafskaut og rafhlaða?
Rafskaut Amoul i3 og i5 endast í um 3 ár og rafhlaðan í um 5 ár. Viðskiptavinir Dalberg fá áminningu áður en kemur að endurnýjun.
Hvar á hjartastuðtækið að vera?
Á vel merktum stað sem allir þekkja og hægt er að komast að á innan við 1–2 mínútum, t.d. við inngang, í móttöku eða á gangi. Utandyra þarf upphitaðan skáp. Lestu meira um hjartastuðtæki á vinnustaðnum.
Sendið þið út á land?
Já, við sendum um allt land. Einnig er hægt að sækja í verslun okkar að Kleppsmýrarvegi 8.
Fáðu tilboð fyrir þinn vinnustað
Hringdu í 554 1888 eða sendu póst á info@dalberg.is. Við hjálpum þér að velja rétt tæki, skáp og staðsetningu.


















