Gáttatif er algengasta hjartsláttartruflun fullorðinna og eykur verulega hættu á heilablóðfalli. Mörg sem eru með gáttatif finna engin einkenni og vita ekki af því. Blóðþrýstingsmælar með gáttatifsgreiningu (AFib) skima fyrir því í hverri mælingu heima. Hér förum við yfir hvernig þeir virka og hvað niðurstöðurnar þýða.
Hvað er gáttatif?
Í gáttatifi slá gáttir hjartans hratt og óreglulega í stað þess að dragast saman í takti. Blóðið flæðir þá ekki eðlilega í gegnum hjartað og blóðtappar geta myndast, sem geta borist til heilans og valdið heilablóðfalli.
Gáttatif verður algengara með aldrinum og er algengara hjá fólki með háþrýsting, sykursýki, kæfisvefn eða hjartasjúkdóm. Einkenni geta verið hjartsláttarónot, mæði, svimi eða þreyta, en oft eru engin einkenni.
Hvernig virkar AFib-greining í blóðþrýstingsmæli?
Mælirinn skráir púlsinn í gegnum mansettuna á meðan hann mælir blóðþrýstinginn. Ef bilið milli hjartslátta er óreglulegt á þann hátt sem einkennir gáttatif birtist AFib-tákn á skjánum. Sumir mælar taka þrjár mælingar í röð til að auka áreiðanleika.
Mikilvægt: AFib-vísirinn bendir á mögulegt gáttatif en kemur ekki í stað greiningar. Gáttatif er aðeins staðfest af lækni með hjartalínuriti.
Hvað á að gera ef AFib-tákn birtist?
- Slakaðu á og mældu aftur eftir nokkrar mínútur. Hreyfing, tal og hiksti geta truflað mælinguna.
- Ef táknið birtist aftur skaltu panta tíma hjá heimilislækni og sýna honum mælingarnar.
- Hringdu strax í 112 ef þú færð brjóstverk, mikla mæði, ef það líður yfir þig eða þú færð merki um heilablóðfall, t.d. lamaða eða máttlausa hlið í andliti eða líkama eða erfiðleika með tal.
Hverjum gagnast slíkur mælir?
- Fólki sem mælir blóðþrýsting heima vegna háþrýstings
- Fólki yfir miðjan aldur, því gáttatif verður algengara með aldri
- Fólki með sykursýki eða hjartasjúkdóm
- Fólki sem finnur fyrir óreglulegum hjartslætti
Svona mælir þú blóðþrýsting rétt
- Sittu í ró í 5 mínútur áður en þú mælir, með bakið stutt og fæturna flata á gólfinu.
- Hafðu mansettuna í hjartahæð og á berum upphandlegg.
- Ekki tala eða hreyfa þig meðan mælt er.
- Mældu á sama tíma dags, t.d. að morgni og kvöldi.
Nánar: Blóðþrýstingsmælir heima: svona mælir þú rétt.
Mælar með AFib-greiningu hjá Dalberg
- Omron M3 Comfort AFib: einfaldur og áreiðanlegur heimamælir.
- Omron M4 Connect AFib: með Bluetooth og OMRON Connect appi.
- Omron M6 Comfort AFib: Intelli Wrap mansetta sem mælir nákvæmlega í hvaða stöðu sem er.
- Omron M7 Intelli IT AFib: Intelli Wrap mansetta og Bluetooth, meðaltal þriggja mælinga og samanburður morgun- og kvöldmælinga.
- Microlife AFIB B3
Fyrir þau sem vilja ganga lengra er einnig til heimahjartalínuritstæki með AFib-greiningu.
Algengar spurningar
Getur mælirinn greint gáttatif?
Hann getur bent á mögulegt gáttatif, en aðeins læknir getur greint það með hjartalínuriti.
Er AFib-mælir nákvæmur í blóðþrýstingsmælingum?
Já, mælarnir eru klínískt staðfestir blóðþrýstingsmælar. AFib-greiningin er viðbót.
Hvaða stærð af mansettu þarf ég?
Mældu ummál upphandleggs mitt á milli axlar og olnboga og veldu mansettu sem passar. Intelli Wrap mansettan passar fyrir 22 til 42 cm.
Þessi grein er almenn fræðsla og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis.

