Littmann Cardiology IV hlustunarpípa

Littmann hlustunarpípur eru þær mest notuðu í heiminum og algengasta val nema og heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi. En hvaða gerð hentar þér? Hér berum við saman algengustu gerðirnar og förum yfir hvað skiptir máli við valið.

Littmann Lightweight II S.E.

Létt og einföld hlustunarpípa með tvíhliða hlustunarstykki. Hentar vel fyrir almennar mælingar, blóðþrýstingsmælingar og hjúkrun þar sem ekki er þörf á mestu hljóðgæðum. Góð byrjendapípa á hagstæðu verði.

Hentar: hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraflutningum og heimahjúkrun.

Skoða Littmann Lightweight II S.E.

Littmann Classic III

Vinsælasta hlustunarpípan og sú sem flestir nemar í læknisfræði og hjúkrunarfræði velja. Hún er með tvíhliða hlustunarstykki með stillanlegum himnum, svo hægt er að heyra bæði lág og há hljóð með því að breyta þrýstingnum, án þess að snúa stykkinu. Minni hliðin hentar börnum og grannvöxnu fólki. Fjölbreytt litaval.

Hentar: nemum, hjúkrunarfræðingum, heimilislæknum og flestum í klínísku starfi.

Skoða Littmann Classic III

Littmann Cardiology IV

Hlustunarpípa með mestu hljóðgæðunum af þessum þremur. Með henni heyrast lág og veik hljóð betur, t.d. í hjarta- og lungnahlustun, og hún hentar því þar sem nákvæmni skiptir mestu. Tvöföld slanga í einni klæðningu dregur úr utanaðkomandi hljóðum.

Hentar: læknum, sérfræðingum, bráðalækningum og þeim sem hlusta mikið á hjarta og lungu.

Skoða Littmann Cardiology IV

Samanburður

Lightweight II S.E. Classic III Cardiology IV
Hljóðgæði Góð Mjög góð Frábær
Stillanlegar himnur Öðrum megin Já Já
Hentar best Almennar mælingar, hjúkrun Nemar og flest klínísk störf Læknar og sérfræðingar
Verð Lægst Miðlungs Hæst

Hvað skiptir máli við valið?

  • Hvað hlustar þú á? Fyrir blóðþrýsting og almennar mælingar dugar léttari pípa. Fyrir hjarta- og lungnahlustun skila betri hljóðgæði sér.
  • Hverja hlustar þú á? Fyrir börn og ungabörn eru til sérstakar barnapípur.
  • Hversu oft? Því meira sem pípan er notuð, því meira borgar sig að velja gæði.
  • Litur. Margir velja lit sem auðvelt er að þekkja á deildinni.

Svona ferðu með hlustunarpípuna

  • Þrífðu hlustunarstykkið og eyrnatútana með sprittklút milli sjúklinga.
  • Ekki dýfa pípunni í vökva eða setja hana í sótthreinsunarvél.
  • Haltu henni frá olíum og leysiefnum, sem geta skemmt slanguna.
  • Ekki vefja henni þétt eða geyma hana í miklum hita, t.d. í bíl í sól.
  • Skiptu um eyrnatúta og himnu ef þau slítast. Varahlutir fást hjá okkur.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á Classic III og Cardiology IV?
Með Cardiology IV heyrast hljóð betur, sérstaklega veik og lág hljóð, og hún hentar því betur í hjarta- og lungnahlustun. Classic III er léttari, ódýrari og dugar flestum.

Er hægt að láta grafa nafn á pípuna?
Hafðu samband og við athugum möguleikana.

Sendið þið út á land?
Já, við sendum um allt land.

Sjá allar Littmann hlustunarpípur eða allar hlustunarpípur.

Heilbrigðisstarfsfólk, Hlustunarpípur, Littmann