Eldur getur breitt hratt úr sér og fyrstu mínútturnar skipta öllu. Með réttu slökkvitæki á réttum stað má oft slökkva eld áður en hann verður að stórbruna. En ekki henta öll tæki á alla elda. Hér förum við yfir það helsta.

Eldflokkar

  • A – föst efni eins og viður, pappír, textíll og plast.
  • B – eldfimir vökvar eins og bensín, olía og lakk.
  • C – gas.
  • F – matarolía og feiti í eldhúsum.

Eldar í rafbúnaði eru sérstakt tilvik. Þar skiptir máli að tækið sé prófað og merkt fyrir notkun við rafbúnað upp að tiltekinni spennu.

Gerðir slökkvitækja

Léttvatnsslökkvitæki

Hentar vel á A- og B-elda og er algengt á heimilum, í skrifstofum og á vinnustöðum. Léttvatn skilur eftir minni óhreinindi en duft, sem gerir það þægilegt innandyra. Sumar gerðir eru prófaðar fyrir rafbúnað – sjá merkingu tækisins.

Duftslökkvitæki (ABC)

Fjölhæft tæki sem slökkvir A-, B- og C-elda. Hentar vel í bíla, í bílskúra, á verkstæðum og útisvæðum. Gallinn er að duftið dreifist víða og getur skemmt rafeindabúnað, og í litlum rýmum skerðir það sýn.

Kolsýruslökkvitæki (CO2)

Hentar vel á elda í rafbúnaði og eldfimum vökvum og skilur ekki eftir sig nein óhreinindi. Því eru þau algeng í tölvurýmum, við rafmagnstöflur og á rannsóknarstofum. Kolsýrutæki henta síður á A-elda, því glóð getur kviknað aftur.

Feitislökkvitæki (F)

Sérstaklega ætlað fyrir elda í matarolíu og djúpsteikingarpottum í atvinnueldhúsum.

Eldvarnateppi

Einfalt og áhrifaríkt til að kæfa eld í potti eða pönnu á eldavélinni, og til að vefja utan um manneskju ef kviknar í fötum hennar. Eldvarnateppi ætti að vera í hverju eldhúsi. Aldrei skal slökkva eld í feiti með vatni.

Hvað þarf heimilið?

Algeng ráðlegging fyrir heimili er að hafa að minnsta kosti eitt slökkvitæki af hentugri stærð (t.d. 6 lítra léttvatnstæki eða 6 kg duftslökkvitæki) nálægt útgangi, eldvarnateppi í eldhúsi og reykskynjara í hverju herbergi. Kynntu þér líka leiðbeiningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og slökkviliðsins.

Hvað þarf vinnustaðurinn?

Fjöldi, gerð og staðsetning slökkvitækja á vinnustað fer eftir stærð húsnæðisins, starfseminni og brunahönnun. Almennar reglur eru:

  • Slökkvitæki eiga að vera sýnileg, aðgengileg og merkt með skilti.
  • Þau eiga að vera við útganga og nálægt hættusvæðum, t.d. eldhúsi, rafmagnstöflum og verkstæðum.
  • Gerð tækis á að henta þeirri eldhættu sem er á staðnum.
  • Starfsfólk á að vita hvar tækin eru og hvernig á að nota þau.

Slökkvilið og þjónustuaðilar í eldvörnum geta aðstoðað við að meta þörfina.

Viðhald

  • Líttu reglulega á þrýstingsmælinn og innsiglið.
  • Láttu fagmann yfirfara slökkvitæki árlega.
  • Skiptu út eða láttu endurhlaða tæki eftir notkun, líka ef aðeins var notað lítillega.

Slökkvitæki hjá Dalberg

Í flokknum slökkvitæki og eldvarnir finnur þú léttvatnstæki, duftslökkvitæki, kolsýrutæki og eldvarnateppi. Við eigum líka skápa og standa fyrir slökkvitæki og skilti fyrir slökkvibúnað. Við sendum um allt land og fyrirtæki geta óskað eftir tilboði.

Algengar spurningar

Hvaða slökkvitæki er best fyrir heimili?

Léttvatnsslökkvitæki eða duftslökkvitæki af hentugri stærð, ásamt eldvarnateppi í eldhúsi. Léttvatn skilur eftir minni óhreinindi innandyra.

Hve oft þarf að yfirfara slökkvitæki?

Mælt er með árlegri skoðun hjá þjónustuaðila og að líta reglulega á þrýstingsmælinn sjálfur.

Má nota vatn á rafmagnseld?

Nei. Notaðu tæki sem er merkt fyrir rafbúnað, t.d. kolsýrutæki, og rjúttu strauminn ef það er hægt án hættu.

Eldvarnir, Slökkvitæki, Vinnustaðir