TENS tæki eru lítil raförvunartæki sem margir nota heima við verkjum í baki, hálsi, herðum og liðum. Þau eru lyfjalaus leið til verkjameðferðar og sjúkraþjálfarar nota þau daglega.
Hvernig virkar TENS?
TENS (raftaugaörvun um húð) sendir væga rafpúlsa í gegnum elektróður, líka kallaðar rafskaut eða blöðkur, sem límdar eru á húðina. Púlsarnir örva skyntaugarnar og geta dregið úr verkjaboðum til heilans. Flestir finna það sem kitl eða titring.
TENS og EMS – hver er munurinn?
TENS beinist að taugunum og verkjum. EMS (raförvun vöðva) lætur vöðvana dragast saman og er notað til styrkingar, endurhæfingar og endurheimtar eftir æfingar. Mörg tæki eru með bæði TENS og EMS.
Hvaða tæki hentar?
- Fyrir heimanotkun: Tveggja rása tæki með tilbúnum forritum, t.d. GIMA-Care með 60 forritum og hleðslurafhlöðu.
- Fyrir íþróttafólk: TENS/EMS tæki með vöðvaörvunarforritum, t.d. Mio-Care Fitness.
- Fyrir sjúkraþjálfun: Fjögurra rása tæki eins og T-ONE eða I-Tech Physio.
Svona notar þú TENS tæki
- Hreinsaðu og þurrkaðu húðina þar sem elektróðurnar eiga að fara.
- Settu elektróðurnar í kringum verkjasvæðið, ekki beint á sár eða liðamót.
- Veldu forrit og auktu styrkinn hægt þangað til þú finnur greinilegt en þægilegt kitl.
- Fylgdu leiðbeiningum tækisins um lengd meðferðar.
Hverjir mega ekki nota TENS?
TENS hentar ekki fólki með gangráð eða önnur ígrædd raftæki. Barnshafandi konur og fólk með flogaveiki ættu að ráðfæra sig við lækni fyrst. Ekki setja elektróður framan á háls, á höfuð eða á sár. Leitaðu til læknis ef verkir eru miklir eða langvarandi.
Skoðaðu öll TENS tæki og elektróður eða finndu lausn eftir líkamssvæði.

