Vöruflokkar
Eldvarinn búnaður og skjalaskápar
45 vörur
Sýnir 1–45 af 45 vöru
Hér er eldvarinn búnaður frá Ecosafe sem dregur úr hættu á að eldur kvikni eða breiðist út: skjalaskápar, eldvarðar ruslafötur með fótstigi, öryggisöskubakkar og eldvarnarteppi. Búnaðurinn hentar skrifstofum, verkstæðum, rannsóknarstofum, skólum og heilbrigðisstofnunum. Dalberg er söluaðili Ecosafe á Íslandi.
Hvað er í boði?
Eldvarðar ruslafötur eru með loki sem lokast sjálfkrafa og kæfa eld ef kviknar í, til dæmis í tuskum með olíu eða leysiefnum. Eldvarðir skjalaskápar verja mikilvæg gögn. Eldvarnarteppi eru einföld og fljótleg leið til að kæfa eld á byrjunarstigi.
Vöruflokkar
Algengar spurningar
Af hverju eldvarða ruslafötu á verkstæðið?
Tuskur með olíu, málningu eða leysiefnum geta hitnað og kviknað í af sjálfu sér. Ruslafata með sjálflokandi loki kæfir eldinn og kemur í veg fyrir að hann breiðist út.
Hvaða stærð af eldvarnarteppi þarf ég?
Stærra teppi hylur meira og hentar betur á verkstæði og í iðnaði, en minna teppi dugar oft í eldhús og kaffistofur.
Sjá einnig allt úrval Ecosafe hjá Dalberg.
Viltu tilboð? Sendu fyrirspurn á vörusíðunni, sendu póst á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.
















































