Vöruflokkar

Útisvæði og gatnagögn
5 vörur
Sýnir 1–5 af 5 vöru
Gatnagögn og stálbúnaður fyrir útisvæði frá FSP sameina endingu og fallegt útlit. Búnaðurinn hentar torgum, göngugötum, skólalóðum og öðrum svæðum þar sem mikið mæðir á yfirborði og frágangur skiptir máli.
Í flokknum
- Trjágrindur og trjáristar sem verja rætur og gefa trjám pláss í hellulögn.
- Raufarennur úr ryðfríu stáli fyrir yfirborðsvatn.
- FAB EDGE™ stálkantar fyrir stíga, beð og hellulögn.
- FAB FURNITURE™ borgarbúnaður úr stáli.
- Pop Up Power® innfelld rafmagnseining í jörðu fyrir viðburði og markaði.
Fyrir hverja?
Lausnirnar henta sveitarfélögum, landslagsarkitektum og verktökum. Flest er lagað að hverju verkefni, svo best er að senda okkur teikningar eða mál og lýsingu á svæðinu þegar óskað er eftir tilboði.
Stál hentar vel á svæðum þar sem mikið álag er af umferð, snjómokstri og veðri. Trjágrindur verja jarðveginn umhverfis tréð gegn þjöppun, svo tré dafni betur í hellulögðu umhverfi. Stálkantar halda hellulögn og beðum í réttri línu árum saman.
Algengar spurningar
Hvað er Pop Up Power®?
Rafmagnseining sem er felld í jörðu og hægt að draga upp þegar þörf er á rafmagni, til dæmis á viðburðum og mörkuðum.
Er hægt að fá búnaðinn eftir máli?
Já, sendu okkur upplýsingar um verkefnið og við fáum tilboð frá FSP.
Sjáðu allar FSP lausnir. Fyrir tilboð hringdu í síma 554 1888 eða sendu póst á sala@dalberg.is.










