Amoul i3 er hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki (AED) sem talar íslensku og leiðir hvern sem er í gegnum endurlífgun, skref fyrir skref. Tækið greinir hjartsláttinn sjálft og hleður aðeins ef það greinir stuðhæfan takt; notandinn gefur stuðið með því að ýta á hnapp. Það er fyrir bæði fullorðna og börn, er ryk- og skvettuvarið (IP54) og prófar sig sjálft daglega. Einfalt og traust tæki fyrir vinnustaði, skóla, íþróttafélög og húsfélög.
Helstu kostir
- Talar íslensku – skýrar raddleiðbeiningar um rafskaut, stuð og hjartahnoð. Einnig á ensku og pólsku, sem skiptir máli á fjölþjóðlegum vinnustöðum.
- Leiðsögn við hjartahnoð – tækið telur niður hnoðlotuna með raddleiðbeiningum og greinir hjartsláttinn aftur að henni lokinni.
- Fyrir fullorðna og börn – 200 J stuð fyrir fullorðna og 50 J fyrir börn; rafskaut fyrir fullorðna og börn fylgja.
- Daglegt sjálfspróf – tækið athugar sjálft ástand sitt á hverjum degi.
- Fjarvöktun um 4G – tækið getur sent stöðu sína og niðurstöður sjálfsprófa í vöktunarkerfi, svo hægt er að fylgjast með því úr fjarlægð.
- IP54 – varið gegn ryki og vatnsskvettum.
- Lítill rekstrarkostnaður – rafhlaðan endist í allt að 5 ár og rafskautin í 3 ár. 5 ára ábyrgð á tæki.
Tæknilegar upplýsingar
- Gerð: Amoul i3, hálfsjálfvirkt hjartastuðtæki (AED)
- Framleiðandi: Ambulanc (Shenzhen) Tech. Co., Ltd. (Amoul®)
- Stuðorka: 200 J (fullorðnir), 50 J (börn)
- Bylgjuform: tvífasa (biphasic truncated exponential) með leiðréttingu fyrir viðnámi sjúklings
- Raddleiðbeiningar: íslenska, enska, pólska
- Rafhlaða: einnota litíum-rafhlaða, minnst 200 stuð á 200 J, endingartími allt að 5 ár
- Rafskaut: fyrir fullorðna og börn; endingartími 3 ár
- Sjálfspróf: daglegt
- Ryk- og vatnsvörn: IP54
- Gagnageymsla: minnst 16 GB fyrir hjartalínurit og atburðaskrár
- Tenging: 4G fyrir fjarvöktun
- Þyngd: 2,3 kg
- Staðlar/vottun: CE-merkt lækningatæki í áhættuflokki III samkvæmt reglugerð ESB 2017/745 (MDR)
- Ábyrgð: 5 ár á tæki
Amoul i5 eða i3?
| Amoul i5 | Amoul i3 | |
|---|---|---|
| 7" HD-skjár með myndrænum leiðbeiningum | Já | Nei |
| Íslenskar raddleiðbeiningar | Já | Já |
| Stuðorka fullorðnir / börn | 200 J / 50 J | 200 J / 50 J |
| Daglegt sjálfspróf | Já | Já |
| 4G-fjarvöktun | Já | Já |
| Ábyrgð á tæki | 5 ár | 5 ár |
Hentar fyrir
Vinnustaði og skrifstofur, skóla og leikskóla, íþróttafélög og íþróttahús, sundlaugar og líkamsræktarstöðvar, fjölbýlishús og húsfélög, sumarbústaði og frístundabyggðir, hótel, verslanir, veitingastaði, kirkjur, sveitarfélög og opinberar stofnanir. Fyrir íþróttahús, sundlaugar og stærri vinnustaði þar sem hávaði getur verið mikill mælum við einnig með Amoul i5 með 7" skjá, sem sýnir hvert skref líka á myndrænan hátt.
Við hjartastopp minnka lífslíkur hratt með hverri mínútu sem líður án rafstuðs og sjúkrabíll er oft lengur á leiðinni. Hjartastuðtæki á staðnum getur skipt sköpum áður en sjúkralið kemur.
Áfyllingar og fylgihlutir
Í pakkanum eru rafskaut og rafhlaða. Varahlutir (rafskaut og rafhlöður) fást hjá Dalberg. Við bjóðum einnig skápa og skilti fyrir hjartastuðtæki, bæði fyrir innan- og utanhússnotkun, m.a. skápa með viðvörun og hitastýringu.
Fáðu tilboð í pakka: Viltu tæki, skáp og skilti saman, eða tæki fyrir marga staði? Hringdu í 554 1888 eða sendu póst á info@dalberg.is.
Algengar spurningar
Þarf námskeið til að nota tækið?
Tækið er hannað fyrir almenning og leiðir notandann í gegnum hvert skref á íslensku. Við mælum samt eindregið með skyndihjálparnámskeiði fyrir starfsfólk.
Hvað þarf að endurnýja og hvenær?
Rafskautin á 3 ára fresti og rafhlöðuna á 5 ára fresti, eða eftir notkun. Viðskiptavinir Dalberg fá áminningu áður en kemur að endurnýjun.
Hvar er best að geyma tækið?
Á vel merktum og aðgengilegum stað, t.d. við inngang eða í móttöku. Ef tækið er geymt utandyra þarf upphitaðan skáp.
Sendið þið út á land?
Já, við sendum um allt land. Einnig er hægt að sækja í verslun okkar að Kleppsmýrarvegi 8.
Vörublað
Sækja öryggis- og virkniupplýsingar frá Amoul (PDF, á ensku)
Lýsing á ensku (Original English)
Amoul AED i3 semi-automatic external defibrillator. Smart ECG analysis with real-time voice guidance for AED use and CPR. Equipped with adult and pediatric electrode pads, delivering a 200 J shock for adults and 50 J for pediatrics. Rated IP54 for dust and water resistance, powered by a long-lasting disposable battery that lasts up to five years. Daily self-tests, with optional 4G connectivity for remote management and real-time data upload to the AED management platform.





