Vöruflokkar
Öryggisskápar fyrir eiturefni og fjölþætta áhættu
105 vörur
Sýnir 1–48 af 105 vöru
Öryggisskápar frá Ecosafe fyrir eiturefni, varnarefni og önnur hættuleg efni, og fjölnota skápar sem geyma fleiri en eina tegund efna í aðskildum hólfum. Hér eru einnig skápar undir borð og loftræstir skápar fyrir eiturefni, sumir eldþolnir samkvæmt EN 14470-1. Hentar rannsóknarstofum, skólum, sjúkrahúsum, iðnaði og landbúnaði. Dalberg er söluaðili Ecosafe á Íslandi.
Hvernig vel ég skáp fyrir hættuleg efni?
Byrjaðu á að flokka efnin. Efni sem geta hvarfast hvert við annað, til dæmis sýrur og basar eða eldfim efni og oxandi efni, eiga ekki að standa saman. Fjölnota skápur með aðskildum hólfum leysir það í einum skáp. Ef eldfim efni eru meðal þeirra þarf eldþolinn skáp samkvæmt EN 14470-1. Fyrir efni sem gefa frá sér gufur hentar loftræstur skápur.
Vöruflokkar
- Skápar fyrir varnarefni
- Fjölnota öryggisskápar (multirisk)
- Skápar fyrir hættuleg efni
- Öryggisskápar undir borð
- Loftræstir skápar fyrir eiturefni
Algengar spurningar
Má geyma sýrur og basa í sama skáp?
Já, en aðeins í aðskildum hólfum með sér lekabakka, svo efnin geti ekki blandast ef leki verður.
Þurfa varnarefni sérstakan skáp?
Varnarefni á að geyma læst, aðskilin frá matvælum og fóðri og þar sem óviðkomandi komast ekki að. Skápar fyrir varnarefni eru gerðir fyrir það.
Hvað er fjölnota öryggisskápur?
Skápur með fleiri en einu hólfi, þar sem hægt er að geyma ólíkar tegundir efna aðskildar, til dæmis eldfim efni í eldþolnu hólfi og ætandi efni í öðru.
Sjá einnig allt úrval Ecosafe hjá Dalberg.
Viltu tilboð? Sendu fyrirspurn á vörusíðunni, sendu póst á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.













































































