Vöruflokkar

Sólarsellur og snúrur
10 vörur
Sýnir 1–10 af 10 vöru
Með sólarsellu hleður þú orkubankann án rafmagns úr innstungu: á pallinum við sumarhúsið, á þaki húsbílsins eða á tjaldsvæðinu. Bluetti sólarsellurnar eru samanbrjótanlegar, vatnsvarðar og tengjast beint í orkubankann með MC4 í XT60 snúru.
Hvaða sólarsella hentar?
- PV100 er létt og nett fyrir minni orkubanka eins og Elite 10 og Elite 30 V2.
- PV200 hentar flestum orkubönkum í millistærð og er vinsælust í ferðalög.
- PV350 gefur mest afl og fyllir stóra orkubanka hraðast.
Á íslensku sumri gefur sólarsella oft 50–70% af uppgefnu afli og minna í skýjuðu veðri. Ef þú þarft hraða hleðslu allt árið er gott að tengja tvær sellur saman eða bæta við Charger 1 eða 2 til að hlaða úr bílnum.
Snúrur og framlengingar
MC4 í XT60 snúran tengir sólarselluna við orkubankann. Framlengingarnar (90 cm, 3 m og 6 m) leyfa þér að hafa selluna í sólinni og orkubankann í skugga eða inni, og flatsnúran fer í gegnum glugga eða hurðarföls án þess að skemma þéttinguna.
Sjá líka: orkubankar og allar Bluetti vörur.













