A-SPE AS10 rörmerkingar Eco – sérprentað límband, 25 m

A-SPEAS10

Stærð: 50 mm x 25 m
Verð:
0 kr

AS10 Eco er hagkvæmasta lausnin í rörmerkingum frá A-SPE. Merkingarnar sýna innihald og flæðisstefnu í lögnum um borð í skipum, á borpöllum, í olíu- og gasvinnslu og í vinnslukerfum, og geta einnig sýnt hitastig, þrýsting eða hættusvæði. Límbandið er prentað eftir pöntun með þeim texta og táknum sem óskað er.

Helstu kostir

  • Hagkvæmt og einfalt í notkun
  • Sérprentað með hvaða texta eða myndum sem er
  • Lakkhúð til varnar prentuninni
  • Gott UV-þol og mjög gott veðurþol; þolir sjó
  • Hentar sérstaklega á nýjar lagnir

Tæknilegar upplýsingar

  • Vörulína: AS10
  • Efni: 100 µm sjálflímandi vínyll með lakkhúð; heildarþykkt 200 µm með undirlagi
  • Viðloðun 21 N/25 mm (FINAT FTM-1, SS)
  • Hitaþol -40 til +80 °C
  • Ending 3–8 ár; ekki endurnýtanlegt; undirbúa þarf yfirborð
  • Getur uppfyllt ISO 14726:2008, BS 1710, BS 4800, ANSI/ASME A13.1 og DGUV TRGS 201
  • Sérbreidd allt að 2500 mm; forskornar merkingar allt að 50 m

Útgáfur

  • 50 mm x 25 m – AS10
  • 75 mm x 25 m – AS10
  • 100 mm x 25 m – AS10
  • 150 mm x 25 m – AS10

Tilboðsvara: Varan er afgreidd eftir pöntun. Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu og við gerum þér tilboð.

Vörublöð

Lýsing á ensku (Original English)

Most economical pipe identification solution in the range. Shows contents and flow direction of pipe sections in marine, offshore, oil and gas and process installations; can also show temperature, pressure or hazard locations.

Tengdar vörur

Nýlega skoðað