AS44 er sveigjanleg og formstöðug sjálflýsandi filma með límlagi og losunarpappír. Úr henni má skera eða silkiprenta skilti og merkingar sem lýsa í myrkri innandyra, í byggingum, skipum og lestum.
Helstu kostir
- Hvorki eitruð, hættuleg né geislavirk
- Mikill ljómi og góð ending
- Hentar í rýmingarskilti og aðvörunarborða
- Nýtist einnig til skrauts, t.d. á heimilum, skrifstofum, hótelum, leikhúsum, vöruhúsum og í undirgöngum
- Vísað til MED 2014/90/ESB (DNV)
Tæknilegar upplýsingar
- Vörulína: AS44
- Gervifilma með vatnsbundnu akrýllími; þykkt u.þ.b. 0,3 mm; 0,7 kg/m²
- Límstyrkur ≥400 N/m (GB/T 2792-1988)
- Togstyrkur ≥12 MPa; teygja við brot ≥150 %; súrefnisstuðull >26
- Hitaþol -20 til +50 °C; lagning við minnst +15 °C
- Ending 5–10 ár innandyra, 3–5 ár utandyra; geymist við +15 til +30 °C og 40–60 % rakastig
- Birta (DIN 67510-1): flokkur C ≥176 / ≥22 mcd/m² eftir 10 / 60 mín., ljómatími ≥2752 mín.; flokkur D ≥265 / ≥33, ≥4256 mín.
- Rúlla 1000 mm x 50 m
Útgáfur
- Flokkur C, 1000 mm x 50 m – AS-44/C
- Flokkur D, 1000 mm x 50 m – AS-44/D
Tilboðsvara: Varan er afgreidd eftir pöntun. Sendu okkur fyrirspurn eða hringdu og við gerum þér tilboð.
Vörublöð
- Bæklingur og tækniblað AS44
- Gæðakerfisvottorð EC (Module D) AS41–AS44
- EC-gerðarprófunarvottorð (Module B) AS41–AS44
Lýsing á ensku (Original English)
Flexible, dimensionally stable synthetic film with adhesive layer and release paper. Can be cut or screen-printed into indoor glow-in-the-dark signs and markings for buildings, ships and trains.






