Bluetti EP2000 varaaflskerfi – 20 kW – þriggja fasa


Bluetti EP2000 er þriggja fasa varaaflskerfi og orkugeymsla fyrir heimili, fyrirtæki og bændabýli. Kerfið tekur sjálfkrafa við þegar rafmagn fer af, á innan við 10 millisekúndum, svo tölvur, kælar, dælur, hitakerfi og stjórnbúnaður halda áfram að ganga. EP2000 er sett saman eftir þörfum hvers og eins og við gerum því tilboð í hvert kerfi. Hafðu samband og við förum yfir þarfirnar með þér.

Hentar þér ef...

  • þú rekur kúabú eða annað bú þar sem mjaltaþjónar, kæling og loftræsting mega aldrei stöðvast.
  • fyrirtækið þitt tapar sölu eða vörum í hvert sinn sem rafmagn fer af, t.d. vegna kæla, frysta eða afgreiðslukerfa.
  • þú býrð þar sem rafmagn dettur reglulega út í óveðrum og vilt halda hita, vatni og frystikistu gangandi.
  • þú ert með eða ætlar að setja upp sólarsellur og vilt geyma orkuna.
  • Ef þú þarft varaafl fyrir einstök tæki á heimili, frekar en alla bygginguna, hentar Bluetti APEX300 oft betur og kostar minna.

Nokkur hugtök á mannamáli

  • kW og kWh: kW (kílóvött) segja til um hve mikið afl kerfið getur skilað í einu, kWh (kílóvattstundir) hve mikil orka er geymd. 20 kW og 29 kWh þýðir að kerfið getur keyrt 20 kW álag í tæpa 1,5 klst eða 2 kW álag í um 14 klst.
  • UPS (órofið varaafl) þýðir að kerfið tekur við svo hratt að tæki og tölvur finna ekki fyrir rafmagnsleysinu.
  • Þriggja fasa rafmagn er það sem flest fyrirtæki, bú og stærri heimili nota fyrir öflugar vélar, varmadælur og hleðslustöðvar.
  • MPPT er stýring sem nær hámarksorku úr sólarsellum við breytilega birtu.
  • LiFePO4 (litíum járnfosfat) er örugg og langlíf rafhlöðugerð.

Helstu kostir

  • Órofið varaafl: skiptir yfir á rafgeyma á innan við 10 ms þegar rafmagn fer af.
  • Þriggja fasa 230/400 V úttak, allt að 20 kW á hvert EP2000 kerfi.
  • Stækkanlegt: 2 til 7 B700 rafgeymar á hvern inverter og allt að þrjú kerfi samsíða, samtals um 155 kWh og 60 kW.
  • Sólarorka: allt að 30 kW sólarsellur með tveimur MPPT inngöngum.
  • Geymir ódýra orku af neti eða umframorku frá sól og nýtir hana þegar þörf er á.
  • IP65 vörn og hljóðlátt, 50 dB eða minna.
  • 10 ára ábyrgð á inverter og LiFePO4 rafgeymum.

Fyrir hverja er EP2000?

  • Bændabýli: mjaltaþjónar, mjólkurtankar, loftpressur, fóðurkerfi og stýribúnaður mega ekki stöðvast. Á kúabúi í Eyjafirði heldur EP2000 fjósinu gangandi í 16 til 20 klukkustundir án rafmagns frá neti.
  • Fyrirtæki: netþjónar, kælar og frystar, afgreiðslukerfi og öryggiskerfi halda áfram þó rafmagn rofni.
  • Heimili og sumarhús: hiti, varmadæla, ísskápur, frystikista, vatnsdæla og net haldast inni í rafmagnsleysi og óveðri.
  • Staðir með veika tengingu: þar sem rafmagn dettur oft út eða heimtaug er takmörkuð getur kerfið jafnað álagstoppa.

Hvernig er kerfið byggt upp?

  • EP2000 inverter breytir orku rafgeymanna í þriggja fasa rafmagn, hleður af neti og sólarsellum og stýrir skiptingu yfir á varaafl.
  • HV800 rafgeymastýring tengir og vaktar rafgeymana.
  • B700 rafgeymar (um 7,37 kWh hver) mynda orkugeymsluna. Hægt er að byrja með tvo og bæta við upp í sjö.

Í tilboði er innifalinn EP2000 inverter, HV800 og allur tengibúnaður. Fjöldi B700 rafgeyma er valinn eftir þörfum.

Hvað getur EP2000 keyrt?

Áætlaður keyrslutími með fjórum B700 rafgeymum (um 29 kWh) við stöðugt álag:

  • Heimili með 1 kW meðalnotkun (ísskápur, frystir, ljós, net, dæla): um 25 klst.
  • Varmadæla í gangi (um 3 kW): um 8 til 9 klst.
  • Lítið fyrirtæki með 2 kW álag (kælar, tölvur, afgreiðsla): um 12 til 13 klst.
  • Fjós með mjaltaþjónum og kælingu: 16 til 20 klst samkvæmt reynslu af íslensku kúabúi (með fleiri rafgeymum).

Allar tölur eru áætlun. Með sólarsellum lengist tíminn verulega að sumri til.

Tæknilýsing

Gerð Bluetti EP2000 hybrid inverter með HV800 og B700
Fasar Þriggja fasa, 3L / N / PE
Varaafl, málafl 10,5 kW (2 × B700), 15,5 kW (3 × B700), 20 kW (4 til 7 × B700)
Spenna og tíðni 230/400 V AC, 50 Hz
Skiptitími á varaafl Undir 10 ms
Hámarks inntaksafl 40 kVA (gegnumstreymi og hleðsla)
Sólarsellur Allt að 30 kW, MPPT 160-850 V (nafnspenna 500 V), 2 MPPT með 2 strengi hvor
Straumur á MPPT 30 A (skammhlaupsstraumur 40 A)
Rafgeymar B700 LiFePO4, um 7,37 kWh hver, 2 til 7 á hvert kerfi
Hámarksstækkun Allt að 3 kerfi samsíða, um 155 kWh og 60 kW
Samskipti USB, Wi-Fi, Bluetooth
Rakavörn IP65
Hljóð 50 dB eða minna
Kæling Viftukæling
Rekstrarhiti -20 °C til 60 °C
Þyngd inverters 60 kg
Mál inverters 670 × 280 × 460 mm
Ábyrgð 10 ár á inverter og LiFePO4 rafgeymum

Algengar spurningar

Hvað kostar EP2000 kerfi?

Verðið fer eftir fjölda rafgeyma, hvort sólarsellur fylgja og uppsetningu á staðnum. Sendu okkur upplýsingar um notkun og heimtaug og við gerum þér tilboð.

Hversu langan tíma tekur uppsetning?

Í flestum byggingum tekur tenging innan við 10 klukkustundir. Löggiltur rafverktaki annast tengingu við rafmagnstöflu.

Virkar EP2000 eins og UPS?

Já. Kerfið skiptir yfir á rafgeyma á innan við 10 ms, sem er nógu hratt til að tölvur, stýrikerfi og mjaltaþjónar haldi áfram án truflana.

Get ég tengt sólarsellur?

Já, allt að 30 kW á hvert EP2000. Umframorka frá sól er geymd í rafgeymunum og nýtt á kvöldin eða þegar rafmagn fer af.

Má stækka kerfið seinna?

Já. Hægt er að byrja með tvo B700 rafgeyma og bæta við upp í sjö, og tengja allt að þrjú EP2000 kerfi samsíða fyrir stærri notendur.

Þarf viðhald?

Nei, kerfið er viðhaldsfrítt. Staða og notkun sjást í Bluetti appinu.

Passar vel með

Skoðaðu allt Bluetti úrvalið hjá Dalberg, orkubanka, sólarsellur, rafgeyma og snúrur.

Óskaðu eftir tilboði

Eitt rafmagnsleysi getur kostað meira en kerfið sjálft, hvort sem það eru skemmd matvæli, mjólk sem fer í súginn eða stöðvaður rekstur. Sendu okkur póst á info@dalberg.is eða hringdu í 554 1888 með upplýsingum um stærð heimtaugar, helstu tæki og hve lengi kerfið á að duga. Við setjum saman kerfi sem passar og sendum þér tilboð, án skuldbindingar.

Dalberg, Kleppsmýrarvegi 8, 104 Reykjavík. Við þjónustum allt landið.

Tengdar vörur

Nýlega skoðað