Sæfð brunagelsgrisja sem kælir hratt og linar verki við fyrsta og annars stigs bruna. Kælingin dregur úr verk og bólgu og kemur í veg fyrir að áverkinn nái dýpra inn í húðina. Grisjan hentar á brunasár allt að 20 x 20 cm; á stærri svæði eru notaðar fleiri grisjur. Hún er áfylling í Cederroth First Aid Burn Kit.
Helstu kostir
- Kælir hratt og linar verki
- Hentar á brunasár allt að 20 x 20 cm
- Vatnsleysanlegt gel, u.þ.b. 90% vatn
- Sæfð og sérpökkuð í poka sem auðvelt er að rífa upp
- Skýrar leiðbeiningar
- 5 ára geymsluþol
Tæknilegar upplýsingar
- Vörunúmer: 51011015
- Stærð: 20 x 20 cm
- Efni: 3 mm pólýúretanfrauð mettað vatnsbundnu geli (með própýlenglýkóli, glýseróli, ýruefni og yfirborðsvirku efni)
- Umbúðir: sæfður poki úr PE/ál/PET, 150 x 180 mm
- Einnota
- Geymsluþol: 5 ár frá framleiðsludegi
- Geymsla: þurrt við stofuhita
- CE-merkt lækningatæki
- Sölueining: 1 grisja
Hentar fyrir
Matvælaiðnað, veitingastaði og stóreldhús, byggingariðnað, verkstæði, vinnustaði og heimili.
Áfyllingar og fylgihlutir
Áfylling í Cederroth First Aid Burn Kit (51011013). Aðrar stærðir: brunagelsgrisja / andlitsgríma 30 x 40 cm (51011014) og 10 x 10 cm (901900). Einnig Burn Gel 100 ml (51011005).
Vörublað
Sækja vörublað frá Cederroth (PDF)
Lýsing á ensku (Original English)
Burn Gel Dressing provides rapid cooling and effective pain relief for first- and second-degree burns. The cold reduces the pain and swelling and prevents the injury from penetrating the skin deeper. Suitable for burns up to 20 x 20 cm; for larger areas use several dressings. Easy to use with clear instructions. Shelf life 5 years.


