Vatnsbundið brunagel fyrir minniháttar bruna, brunasár af heitum vökva og sólbruna. Gelið myndar tímabundna verndarhúð sem kælir og róar húðina og linar verki. Það kemur úr úðabrúsa með pokaloka (bag-on-valve), svo gelið er varið fyrir lofti fram í síðasta dropa og nota má brúsann aftur og aftur. Brúsinn er hluti af Cederroth First Aid Burn Kit.
Helstu kostir
- Kælir hratt og linar verki
- Vatnsleysanlegt gel með aloe vera
- Einfalt að bera á – gel úr úðabrúsa
- Má nota mörgum sinnum; gelið helst varið fyrir lofti
- Má nota á börn
- CE-merkt lækningatæki í flokki IIa
Tæknilegar upplýsingar
- Vörunúmer: 51011005
- Rúmmál: 100 ml
- Innihaldsefni: hreinsað vatn, karbómer, aloe vera og rotvarnarefni (natríummetýlparaben og natríumprópýlparaben)
- Drifefni: köfnunarefni
- Brúsi: úr 100% endurunnu áli
- Mál: 45 x 154 mm
- Notkun: berið ríkulega á svæðið eins fljótt og hægt er eftir brunann
- Ekki ætlað fyrir djúp annars stigs brunasár, efnabruna eða rafmagnsáverka
- Geymsluþol: 3 ár frá framleiðsludegi; geymist þurrt við stofuhita, undir 50 °C
- Sölueining: 1 brúsi
Hentar fyrir
Matvælaiðnað, veitingastaði og stóreldhús, verkstæði, vinnustaði, skóla og heimili.
Áfyllingar og fylgihlutir
Brúsinn er áfylling í Cederroth First Aid Burn Kit (51011013). Brunagelsgrisjur fást í stærðunum 10 x 10 cm (901900), 20 x 20 cm (51011015) og 30 x 40 cm (51011014).
Vörublað
Sækja vörublað frá Cederroth (PDF)
Lýsing á ensku (Original English)
Water-based gel for minor burns, scalds and sunburn. Acts as a temporary protective barrier that cools and calms the skin and provides pain relief. Simple to apply (gel in an aerosol dispenser) and can be used several times. Contains preservatives.


