JOMY niðurdraganlegir stigar (drop-down) eru fastir álstigar þar sem neðri hlutinn rennur niður þegar á þarf að halda. Þannig nær enginn upp stigann frá jörðu og svæðið undir honum er laust – t.d. yfir gangstétt eða akstursleið. Mótvægi tryggja mjúka hreyfingu og hægt er að loka stiganum með annarri hendi.
Helstu kostir
- Neðri hluti rennur niður með mótvægi – mjúk og örugg hreyfing
- Innbrotsvörn: opnunarhandfang má staðsetja hátt eða innan dyra
- Opnun að ofan eða neðan; hægt að tengja við viðvörunarkerfi
- Laust rými undir stiganum (allt að um 3 m)
- Einfaldur eða margfaldur (multislide), með eða án öryggisbúrs
- Tæringarfrítt efni sem þolir allar veðuraðstæður; fáanlegur í RAL-lit
Tæknilegar upplýsingar
- Framleiðandi: JOMY SA, Belgíu
- Efni: ál, tæringarfrítt
- Staðalgerðir: FLIP-01, SINGLE-01 til SINGLE-05, MULTI-01 og MULTI-02
- Laus hæð undir (B): 2.240–4.624 mm eftir gerð
- Hæð lokaðs stiga (A): 2.265–4.505 mm eftir gerð
- Hæð sem náð er (C): 4.505–7.865 mm eftir gerð
- Mál má aðlaga að verkefni
Hentar fyrir
Flóttaleiðir af svölum og þökum, aðgang að þaki og vélum í iðnaðarhúsnæði og vöruhúsum, og staði þar sem ekki má vera stigi niður á jörð – t.d. yfir gönguleið eða þar sem hindra þarf óviðkomandi aðgang.
Sérsmíði og tilboð
Stiginn er smíðaður eftir málum hvers verkefnis og verð er gefið samkvæmt tilboði. Sendu okkur hæðir, teikningar eða myndir af aðstæðum og við gerum tilboð – einnig er hægt að óska eftir mælingu á staðnum.
Vörublað
Sækja bækling um niðurdraganlega stiga frá JOMY (PDF)
Lýsing á ensku (Original English)
JOMY counterbalanced drop-down ladder: an extendable aluminium escape or access ladder whose lower section(s) slide down when needed. Burglar-resistant, keeps the ground beneath free, release from above or below, can be linked to an alarm. Single or multi-slide versions, with or without safety cage, in non-corrosive materials and optional RAL colours.















