NOOMA er tvennt í einu – mjúkt hitateppi og poncho sem þú getur hreyft þig í. Rafhlaða fylgir, svo þú ert ekki bundin(n) við innstungu: allt að 3 klukkustundir af notalegri hlýju í sófanum, við skrifborðið, í bústaðnum eða úti á palli. Prjónaefni öðrum megin og ofurmjúkt flís hinum megin.
Helstu eiginleikar
- 2-í-1: hitateppi eða poncho – rennilás breytir því á augabragði
- Rafhlaða fylgir – þráðlaust, allt að 3 klst af hita
- 3 hitastig
- 3 hitasvæði sem dreifa hitanum jafnt – í poncho-stillingu hitnar um herðar og háls
- Tvær hliðar: smart prjón og mjúkt flís
- Einn hnappur stýrir öllu
- Slekkur sjálfkrafa á sér eftir 120 mín
- Fæst í tveimur litum: karamellu og plómu
Tækniupplýsingar
| Stærð | 90 × 160 cm |
| Hitastig | 3 |
| Hitasvæði | 3 |
| Rafhlaða | Hleðslubanki fylgir (hlaðinn með USB – 5V/3A millistykki fylgir ekki) |
| Ending | Allt að 3 klst |
| Sjálfvirk slökkvun | Eftir 120 mín |
| Efni | Prjón og flís |
| Þvottur | Handþvottur, mest 30°C – rafhlaðan fjarlægð fyrst |
| Vörunúmer framleiðanda | 15611 (karamella) / 15643 (plóma) |
Hæsta hitastig á aðeins að nota með rennilásinn opinn. Fylgist með húðinni og hættið notkun ef roði eða óþægindi koma fram. Hvorki strauja, setja í þurrkara né efnahreinsun.









