4 metra JOMY ICELANDER er fellistigi til flótta úr glugga eða af svölum, festur varanlega utan á húsvegg. ICELANDER er útgáfa af JOMY fellistiganum sem er aðlöguð íslenskum aðstæðum og hefur verið seld hér á landi í um 20 ár með mjög góðri reynslu – stiginn er endingargóður, traustur og einfaldur í uppsetningu.
Helstu kostir
- Alltaf tilbúinn – stiginn er fastur á veggnum og ekkert þarf að sækja í neyð
- Opnast með handfangi og fellur út í fulla lengd á augabragði
- Lokaður fer hann lítið fyrir og líkist niðurfallsröri
- Ál og ryðfríar festingar sem þola íslenskt veðurfar
- Einföld uppsetning á húsvegg
- Löng og góð reynsla á íslenskum heimilum og í fyrirtækjum
Tæknilegar upplýsingar
- Vörunúmer: ICEL4
- Lengd: 4 m
- Framleiðandi: JOMY SA, Belgíu
- Gerð: JOMY ICELANDER fellistigi
- Efni JOMY fellistiga: anóðíserað ál, festingar úr ryðfríu stáli
Hentar fyrir
Einbýlishús, raðhús, fjölbýlishús, sumarhús, gistiheimili, skóla og fyrirtæki þar sem þörf er á annarri flóttaleið af efri hæð. Veldu lengd eftir hæð frá jörðu að þeim glugga eða svölum sem rýma þarf frá; stiginn fæst einnig í 5 m og 6 m lengd.
Vörublað
Sækja bækling um JOMY fellistiga frá JOMY (PDF)
Lýsing á ensku (Original English)
4 m JOMY ICELANDER escape ladder – a version of the JOMY retractable fold-out ladder adapted to Icelandic conditions and sold in Iceland for some 20 years. Aluminium construction, permanently mounted on the façade, closes into a slim drainpipe-like column and deploys in seconds when needed.





