JOMY ICELANDER fellistigi – flóttastigi fyrir íslenskar aðstæður

JOMYICEL 6

JOMY ICELANDER er útgáfa af belgíska JOMY fellistiganum sem er aðlöguð íslenskum aðstæðum. Stiginn hefur verið seldur á Íslandi í um 20 ár og reynslan er mjög góð: hann er endingargóður, traustur og einfaldur í uppsetningu. Hann er festur utan á húsvegg og fellur saman í mjóa súlu sem minnir á niðurfallsrör, en opnast á augabragði þegar rýma þarf íbúð eða hús.

Helstu kostir

  • Varanlegur flóttastigi sem er alltaf á sínum stað – ekkert þarf að sækja eða festa í neyð
  • Opnast með handfangi á rýmingarhæð og fellur út í fulla lengd
  • Lokaður fer hann lítið fyrir og fellur vel að húsinu
  • Ál og ryðfríar festingar þola veður og vind
  • Yfir 20 ára reynsla af notkun á Íslandi
  • Fæst í 4, 5 og 6 metra lengd í vefverslun

Tæknilegar upplýsingar

  • Framleiðandi: JOMY SA, Belgíu
  • Gerð: JOMY ICELANDER – fellistigi (retractable foldout ladder)
  • Efni JOMY fellistiga: anóðíserað ál, festingar úr ryðfríu stáli
  • Lengdir í vefverslun: 4 m (ICEL4), 5 m (ICEL5) og 6 m (ICEL6)
  • Uppsetning: festur á húsvegg

Hentar fyrir

Einbýlishús, raðhús, fjölbýlishús, sumarhús og gistiheimili þar sem þörf er á annarri flóttaleið úr glugga eða af svölum á efri hæð. Hentar einnig fyrirtækjum, skólum og stofnunum.

Lengdir

Stiginn fæst í vefverslun í 4, 5 og 6 metra lengd – veldu lengd eftir hæð frá jörðu að þeim glugga eða svölum sem rýma þarf frá. Fyrir aðrar hæðir og sérlausnir, hafðu samband og við gerum tilboð.

Vörublað

Sækja bækling um JOMY fellistiga frá JOMY (PDF)

Lýsing á ensku (Original English)

The JOMY ICELANDER is a version of the JOMY retractable fold-out escape ladder adapted to Icelandic conditions and sold in Iceland for some 20 years. Made from aluminium, it is mounted permanently on the façade, closes into a slim drainpipe-like column and deploys in seconds from the evacuation level. Available in 4, 5 and 6 m lengths.

Tengdar vörur

Nýlega skoðað