Omron HBP-1120 er faglegur blóðþrýstingsmælir hannaður fyrir mikla daglega notkun á sjúkrahúsum, heilsugæslu og læknastofum. Hægt er að velja sjálfvirka sveiflumælingu eða handvirka hlustunarmælingu með hlustunarpípu, t.d. hjá sjúklingum með gáttatif. Stór og skýr skjár og einföld stjórnun gera hann fljótlegan í notkun.
Helstu kostir
- Tveir hamir: sjálfvirk sveiflumæling eða hlustunarmæling (sérstakur hnappur)
- Núllvísir sýnir að þrýstingur er kominn í núll og tækið tilbúið í næstu mælingu
- Greinir óreglulegan hjartslátt og sýnir tákn á skjá
- Sterkbyggð dæla, nemi og mansettutengi fyrir mikið álag
- Gengur fyrir straumbreyti (fylgir) eða rafhlöðum
- Mansettur sem má þurrka af í fimm stærðum, 12–50 cm
- Klínískt staðfestur – skráður á lista STRIDE BP (stridebp.org) yfir klínískt staðfesta mæla (notkun á stofu/sjúkrahúsi)
Tæknilegar upplýsingar
- Gerð: HBP-1120 (HBP-1120-E)
- Mælitækni: sveiflumæling (oscillometric) og hlustun (auscultatory)
- Birtingarsvið þrýstings: 0–300 mmHg
- Mælisvið: efri mörk 60–250 mmHg, neðri mörk 40–200 mmHg, púls 40–200/mín
- Nákvæmni: meðalskekkja innan ±5 mmHg, staðalfrávik innan 8 mmHg; púls ±5%
- Mál: 130 × 175 × 120 mm
- Þyngd: 0,51 kg
- Lækningatækjaflokkur: IIa
- Staðlar: EN 1060-1, EN 1060-3, EN 80601-2-30, EN ISO 81060-2
- Í kassanum: mælir, mansetta M (22–32 cm), straumbreytir, leiðbeiningar og ábyrgðarskírteini
- GIMA-vörunúmer: 49890
- CND-flokkun: Z1203020501
Hentar fyrir
Sjúkrahús, bráðamóttökur, heilsugæslustöðvar, læknastofur og hjúkrunarheimili þar sem margir sjúklingar eru mældir daglega.
Áfyllingar og fylgihlutir
Aukamansettur Omron GS Cuff2 fyrir HBP-1120 fást hjá Dalberg: XS 12–18 cm, L 32–42 cm og XL 42–50 cm.
Vörublað
Vörubæklingur frá GIMA (PDF)
ESB-samræmisyfirlýsing (GIMA, PDF)
ISO 9001/13485 vottorð (GIMA, PDF)
Afhending
Afhendingartími: 6–8 virkir dagar.
Vörulýsing á ensku
OMRON PROFESSIONAL B. P. MONITOR HBP-1120-EThe HBP-1120 is designed for use in professional settings and is clinically proven to produce fast and reliable results. Irregular heartbeats detection. It is intended for intensive daily use by healthcare professional in hospitals and medical facilities. Zero Indicator function shows that the device is ready for next measurement. It works with AC adaptor or batteries. Class IIa. Supplied with cuff 22-32 cm, AC adapter, guarantee card and multilingual manual in GB, FR, IT, ES, DE, NL, TR, RU, Arabic.



