Eldþolinn öryggisskápur af gerð 90 frá Ecosafe fyrir eldfim efni, úr línu sem er hönnuð fyrir flutninga og notkun um borð í skipum. Gerð 90 samkvæmt EN 14470-1 þýðir að skápurinn verndar innihaldið í að minnsta kosti 90 mínútur í eldi, og hann hefur verið prófaður í 105 mínútur. Skápurinn er 1950 mm á hæð, með tveimur hurðum og 3 hillum, og rúmar 250 lítra. Hann er sérstaklega útbúinn fyrir sjógang: skrúfaður niður í gólf, festur á vegg og með stamri mottu í botni sem dregur í sig leka og heldur ílátum á sínum stað. Hentar um borð í skipum, á verkstæðum og í iðnaði þar sem eldfim efni eru geymd.
- 90 mínútna eldþol samkvæmt EN 14470-1 og EN 1363-1, prófaður í 105 mínútur
- Prófaður og samþykktur af óháðri evrópskri prófunarstofu, uppfyllir FM 6050
- Veggfestingasett og festingar til að skrúfa skápinn niður í gólf á þþremur stöðum, svo hann haggast ekki í sjógangi
- Stöm motta í botni sem dregur í sig leka og kemur í veg fyrir að ílát renni til
- Hitaþenjanlegir þéttilistar á hurðum
- Hæðarstillanlegar hillur, læsing og op fyrir tengingu við loftræstingu
- Tengi fyrir jarðtengingu og staðlaðar viðvörunarmerkingar fylgja
Tæknilegar upplýsingar
| Gerð | 795+PJBE |
|---|---|
| Vottanir/staðlar | EN 14470-1, EN 1363-1 |
| Efni | Epoxýlakkað stál, 1,2 mm |
| Litur hurða | Hvítur, RAL 9010 |
| Fjöldi hurða | 2 |
| Gerð hurða | Vængjahurðir |
| Lamir | Báðum megin |
| Lokun hurða | Sjálfvirk lokun |
| Þvermál loftræstiops (mm) | 100 |
| Tengistútur | 1 |
| Fjöldi hólfa | 1 |
| Fjöldi hillna | 3 |
| Hillur úr PVC | Fáanleg sem aukabúnaður |
| Lekabakki | 1 |
| Lekabakki úr PVC | Fáanleg sem aukabúnaður |
| Rist | Fáanleg sem aukabúnaður |
| Rúmtak lekabakka (L) | 77 |
| Ytri mál HxBxD (mm) | 1950 x 1137 x 620 |
| Innri mál HxBxD (mm) | 1620 x 1000 x 410 |
| Pakkningamál HxBxD (mm) | 2150 x 1200 x 800 |
| Burðargeta hillu (kg) | 50 |
| Rúmmál (L) | 250 |
| Þyngd (kg) | 453,00 |
| Tollnúmer (HS) | 94032080 |
Afhending og verð
Varan er sérpöntuð frá framleiðanda í Frakklandi. Sendu fyrirspurn hér á síðunni og við svörum með verði og afhendingartíma.
Skjöl og nánari upplýsingar
Sjá alla eldþolna skápa af gerð 90 og allt úrval Ecosafe.
Vörulýsing á ensku
2- door tall safety cabinet Type 90 - for maritime motion
- EN 14470-1 and FM 6050 compliant
- Storage of flammables
- Tested 105 min - from outside to inside in accordance with standard EN14470-1
- Fire resistance 90 min - Tested and approved to standard EN 14470-1 and EN 1363-1
- Adjustable shelves in height
- Locking system
- Thermo-expanding seals of the doors
- Holes for the connection to the ventilation
- Normalized labelling provided with the equipment
- Fixation for earthing
- Tested and approved by a independent European laboratory
- Wall fixation kit to prevent maritime motion
- 3 ground fastenings by screwing
- Non-slipping mat allowing to absorb leakage and avoid possible sliding of recipients during maritime motion




