Vekjaraklukka með sólarupprásarljósi - Terraillon Zen Rise


Verð:
14,900 kr

Zen Rise vekur þig blíðlega með ljósi sem eykst smám saman, líkt og sólarupprás – í stað hvellrar vekjaraklukku. Á kvöldin hjálpar sólarlagsljós, sem færist úr appelsínugulu yfir í rautt, þér að slaka á og sofna. Þróað í samstarfi við svefnsérfræðinga og sérlega gagnlegt í skammdeginu þegar enn er dimmt á morgnana.

Helstu eiginleikar

  • Sólarupprásarljós – veldu 5, 10 eða 20 mínútna aðdraganda
  • 2 vekjarar – t.d. einn fyrir virka daga og annar fyrir helgar, eða einn fyrir hvorn aðila
  • 10 hljóð: 5 náttúruhljóð og 5 lög – eða spilaðu þína eigin tónlist um Bluetooth
  • Sólarlagskerfi sem auðveldar svefn
  • Öndunaræfing (hjartasamhæfing) – andaðu í takt við ljósið, 6 andardrættir á mínútu
  • Stemningsljós í 10 litum og næturljós
  • Blundhnappur (snooze) og stillanleg birta á skjá
  • Varaafhlaða sem endist í 5 klst ef rafmagnið fer

Tækniupplýsingar

Vekjarar 2, hvor með sínu ljósi og hljóði
Ljóskerfi Sólarlag, öndunaræfing, stemningsljós, næturljós
Hljóð 10 innbyggð + Bluetooth
Lengd kerfa 15 / 30 / 60 mín
Rafmagn USB-C (snúra og millistykki fylgja) + varaafhlaða, 5 klst
Stærð 10,1 × 10,1 × 5,75 cm
Þyngd 350 g
Vörunúmer framleiðanda 15450

Tengdar vörur

Nýlega skoðað