Sterkur og glær plastkassi með smelltu loki, hugsaður sem viðlagakassi eða neyðarkassi fyrir heimilið. Hentar fyrir 3 til 4 manns í 3 daga samkvæmt ráðleggingum Verum viðbúin. Glært plastið sýnir innihaldið, klemmur halda lokinu föstu og kassinn er staflanlegur. Úr BPA-fríu pólýprópýleni sem má vera í snertingu við matvæli og þolir -40°C til 100°C. Stærð: 59 x 39 x 31 cm, 47 lítrar. Settu saman þinn eigin viðlagakassa á dalberg.is/pages/vidlagakassi.

