Vöruflokkar
Eyrnatappar fyrir sund
2 vörur
Sýnir 1–2 af 2 vöru
Vatn í eyrum getur valdið óþægindum og sundeyra (eyrnabólgu í ytri hlust). Vatnsþéttir sílikon eyrnatappar halda vatninu úti í sundlauginni, í sjónum, í baðinu og í sturtunni. Mack's Pillow Soft eru opinberir eyrnatappar USA Swimming og henta bæði börnum og fullorðnum.
Hvernig vel ég eyrnatappa fyrir sund?
- Fyrir reglulegt sund: Pillow Soft 6 pör, hagkvæmasti pakkinn.
- Í sundtöskuna eða til að prófa: Pillow Soft 2 pör.
- Börn með rör í eyrum: Pillow Soft eru öruggir með hljóðhimnurörum samkvæmt framleiðanda.
Algengar spurningar
Hvernig set ég sílikon tappa í eyrað?
Hnoðaðu tappann mjúkan, mótaðu kúlu og leggðu hana yfir hlustaropið. Þrýstu létt þar til opið lokast. Tappinn á ekki að fara inn í hlustina.
Geta börn notað Pillow Soft?
Já, mörg börn nota Pillow Soft. Fullorðinn ætti að aðstoða ung börn og passa að tapparnir séu ekki skildir eftir þar sem lítil börn ná í þá.
Viltu selja Mack's?
Dalberg er umboðsaðili Mack's á Íslandi. Apótek, sundlaugar, íþróttaverslanir, hótel og ferðaverslanir fá heildsöluverð og frían sölustand eða klemmuborða. Sendu okkur línu á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.




