Vöruflokkar
Mack's eyrnatappar
4 vörur
Sýnir 1–4 af 4 vöru
Mack's er það vörumerki eyrnatappa sem læknar í Bandaríkjunum mæla mest með og Pillow Soft eru mest seldu mótanlegu sílikon eyrnatappar þar í landi. Dalberg er umboðsaðili Mack's á Íslandi og allar vörurnar eru CE vottaðar persónuhlífar samkvæmt reglugerð (ESB) 2016/425.
Hvaða Mack's eyrnatappa á ég að velja?
- Fyrir sund, sturtu og börn með rör í eyrum: Pillow Soft sílikon 6 pör eða 2 pör. 100% vatnsþéttir og fara ekki inn í hlustina.
- Fyrir svefn og hrotur: Dreamgirl svamptappar fyrir litlar hlustir (SNR 33 dB) eða Pillow Soft ef þú vilt ekkert inni í hlustinni.
- Fyrir flug: Flightguard jafna þrýstinginn í flugtaki og lendingu og dempa vélarhljóð.
Sjá líka eyrnatappa fyrir svefn, eyrnatappa fyrir sund, eyrnatappa fyrir flug og allt um Mack's.
Algengar spurningar
Eru Mack's eyrnatappar endurnýtanlegir?
Pillow Soft sílikon tappana má nota nokkrum sinnum þar til þeir hætta að loða eða óhreinkast. Flightguard eru endurnýtanlegir og koma með geymsluboxi. Svamptappa er best að endurnýja reglulega.
Hver er munurinn á sílikon og svamp eyrnatöppum?
Sílikon tappar leggjast yfir hlustaropið og eru vatnsþéttir, frábærir í sund og fyrir þá sem þola illa að hafa eitthvað inni í hlustinni. Svamptappar fara inn í hlustina og dempa yfirleitt meiri hávaða, sem hentar vel í svefn við hrotur.
Má nota Pillow Soft með rörum í eyrum?
Já, framleiðandinn tekur fram að Pillow Soft séu öruggir með hljóðhimnurörum. Fylgdu alltaf ráðleggingum læknis.
Viltu selja Mack's?
Dalberg er umboðsaðili Mack's á Íslandi. Apótek, sundlaugar, íþróttaverslanir, hótel og ferðaverslanir fá heildsöluverð og frían sölustand eða klemmuborða. Sendu okkur línu á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.








