Vöruflokkar
Eyrnatappar fyrir svefn
3 vörur
Sýnir 1–3 af 3 vöru
Góður svefn byrjar í þögn. Hér finnur þú eyrnatappa sem loka á hrotur, umferð og annan hávaða án þess að vera óþægilegir alla nóttina. Allir tapparnir eru CE vottaðar persónuhlífar.
Hvernig vel ég eyrnatappa fyrir svefn?
- Mest hljóðdempun: Mack's Dreamgirl svamptappar með SNR 33 dB, minni en hefðbundnir tappar og þægilegir fyrir hliðarsvefn.
- Ekkert inni í hlustinni: Mack's Pillow Soft sílikon tappar sem leggjast yfir hlustaropið.
- Prófa fyrst: Pillow Soft 2 pör er ódýr leið til að finna hvað hentar þér.
Algengar spurningar
Er óhætt að sofa með eyrnatappa á hverri nóttu?
Flestir geta notað eyrnatappa á hverri nóttu. Haltu þeim hreinum, skiptu reglulega um svamptappa og leitaðu til læknis ef þú finnur fyrir verkjum eða sýkingu í eyra.
Heyri ég vekjaraklukkuna?
Eyrnatappar dempa hljóð en loka ekki alveg fyrir það. Flestir heyra vekjaraklukku og reykskynjara, en prófaðu það heima áður en þú treystir á það.
Viltu selja Mack's?
Dalberg er umboðsaðili Mack's á Íslandi. Apótek, sundlaugar, íþróttaverslanir, hótel og ferðaverslanir fá heildsöluverð og frían sölustand eða klemmuborða. Sendu okkur línu á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.






