Vöruflokkar
Varaafl og neyðarbúnaður
40 vörur
Sýnir 1–40 af 40 vöru
Þegar rafmagnið fer skiptir máli að hafa ljós og geta hlaðið símann. Hér finnur þú hleðslubanka, ferðaorkustöðvar, sólarsellur, höfuðljós og vasaljós sem henta í viðlagakassann, sumarbústaðinn, bílinn og vinnusvæðið.
Hvernig vel ég varaafl?
- Hleðslubankar: frá nettum 10.000 mAh bönkum upp í ferðaorkustöðvar sem knýja fartölvur, ljós og 12V búnað í marga daga.
- Sólarsellur og sólarhleðslubankar: hlaða bankana þegar ekkert rafmagn er að hafa.
- Höfuðljós og vasaljós: endurhlaðanleg og rafhlöðudrifin ljós sem lýsa langt.
Góð þumalputtaregla fyrir heimilið: eitt ljós á mann, hleðslubanki sem dugar í nokkra daga fyrir símana og vasaljós sem gengur fyrir venjulegum rafhlöðum.
Algengar spurningar
Hvað þarf heimilið í rafmagnsleysi?
Ljós fyrir hvern heimilismann, hleðslubanka fyrir símana og útvarp eða síma til að fylgjast með fréttum. Sólarsella lengir tímann sem þú getur verið án rafmagns.
Hvað er mAh og Wh?
Bæði segja til um hversu mikla orku bankinn geymir. Wh er besti mælikvarðinn þegar bankar eru bornir saman, og 10.000 mAh eru um 37 Wh.
Má taka hleðslubanka í flug?
Bankar undir 100 Wh mega fara í handfarangur. Bankar á bilinu 100 til 160 Wh þurfa samþykki flugfélags og stærri bankar mega ekki fara í flug.
Viltu tilboð? Fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög fá tilboð í stærri pantanir hjá sala@dalberg.is eða í síma 554 1888. Við sendum um allt land.
















































































