Hleðslubanki 72.000 mAh (266 Wh) með 12V tengi – Sandberg Survivor 7in1

SandbergC11942

Verð:
Tilboðsverð82,490 kr

Sandberg Survivor 7in1 72000 er margverðlaunaður hleðslubanki sem hleður nánast allt: síma, spjaldtölvur, myndavélar, fartölvur og 12V búnað eins og kælibox eða kaffivél. Sterk og vatnsvarin hönnun gerir hann góðan í útivist, á vinnusvæðum og sem varaafl heima þegar rafmagnið fer.

  • 266 Wh rafhlaða, nóg til að hlaða síma daglega í tæpan mánuð
  • 12V sígarettutengi allt að 180 W
  • 2× USB-C PD (allt að 60 W) og USB-A QC
  • DC úttak með millistykkjum fyrir flestar fartölvur
  • Þráðlaus hleðsla og LED ljós með hvítri og rauðri birtu

Tæknilegar upplýsingar

Rafhlaða 72.000 mAh / 266,4 Wh
Gerð rafhlöðu Li-ion
USB-C PD inn/út Allt að 60 W
USB-C2 út PPS
USB-A QC 3.0
12V úttak 12 V/15 A (180 W)
DC úttak Allt að 70 W
Þráðlaus hleðsla 10 W
Vatnsvörn IPX4
Þyngd 1,5 kg
Hleðslutími 8 til 9 klst. með meðfylgjandi hleðslutæki
Vörunúmer framleiðanda 420-64
EAN 5705730420641

Spurt og svarað

Má taka hann með í flug?
Nei. Bankinn er 266,4 Wh, sem er yfir 160 Wh hámarkinu sem flugfélög leyfa. Hann hentar vel í bílinn, bústaðinn og ferðir á landi.

Hvað munar á honum og 76.800 útgáfunni?
72.000 útgáfan er með öflugra 12V tengi (180 W) og ljós með rauðri birtu, en 76.800 útgáfan er með 100 W USB-C fyrir stærri fartölvur.

Afhending og magnkaup

Sendum um allt land. Fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög geta fengið tilboð í stærri pantanir hjá sala@dalberg.is eða í síma 554 1888.

Sjá allar hleðslubanka og allt úrval Sandberg, eða skoðaðu varaafl og neyðarbúnað fyrir heimilið og vinnustaðinn.


Vörulýsing á ensku

Sandberg Survivor Powerbank 7in1 72000 is the ultimate transportable charging station for just about all your gadgets. The enormous capacity 72000 mAh battery is more than enough to charge your smartphone every day for almost a month. This heavy-duty powerbank comes in robust water-resistant materials, and is perfect for the wild outdoors, festival goers or sales executives on the move.

Tengdar vörur

Nýlega skoðað