Flóttastigi – JOMY ICELANDER fellistigi – 2,5 m

JOMYICEL2.5

Verð:
109,900 kr

Bættu við

  • Skoða
  • Skoða
  • Skoða

2,5 metra JOMY ICELANDER er fastur fellistigi til flótta úr glugga eða af svölum. Hann er festur varanlega utan á húsvegg og er því alltaf á sínum stað þegar á reynir. Þetta er styttsta útgáfan og hentar þar sem stutt er niður á jörð, til dæmis úr glugga á upphækkaðri jarðhæð, af lágum svölum eða úr risi sumarhúss.

Sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður

ICELANDER er útgáfa af JOMY fellistiganum frá belgíska framleiðandanum JOMY, sérstaklega aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Stigi sem stendur utan á húsi þarf að þola rok, rigningu, frost og salt sjávarloft ár eftir ár. Þess vegna er hann úr anóðíseruðu áli og festingarnar úr ryðfríu stáli, svo hann hvorki ryðgar né tærist.

Seldur á Íslandi í 20 ár

ICELANDER hefur verið seldur hér á landi í um 20 ár og reynst einstaklega vel. Stigarnir standa á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum, sumarhúsum, gistiheimilum, skólum og fyrirtækjum um allt land, eru endingargóðir og traustir og þurfa nánast ekkert viðhald.

Ótrúlega einfaldur í uppsetningu

Stiginn er festur á húsvegginn með aðeins fjórum skrúfum. Hann þarf hvorki undirstöðu á jörðu né breytingar á húsinu, og uppsetningin er því fljótleg og einföld.

Lokaður að neðan, opnast ofan frá

Lokaður liggur stiginn saman í mjóa súlu á veggnum sem líkist helst rennu eða niðurfallsröri. Í neyð er tekið í handfangið og þrepin falla út í fulla lengd á augabragði. Stiginn er lokaður og opnast aðeins ofan frá, svo óviðkomandi geta ekki klifrað upp hann neðan frá og komist inn í húsið.

Fellur vel að húsinu

Þar sem lokaður stiginn lítur út eins og renna er auðvelt að mála rennuhlutann í lit sem passar við húsið, ef fólk vill. Ekki þarf að mála stigann sjálfan, aðeins yfirborðið sem sést, og þá fer enn minna fyrir honum.

Rétt staðsetning og lengd

Stiginn þarf að ná upp fyrir neyðaropið, gluggann eða svalirnar, svo auðvelt sé að komast út á hann. Neðri endinn þarf hins vegar ekki að ná niður á jörð. Gott er að hafa hann um 1 metra frá jörðu svo hann opnist hindrunarlaust þótt til dæmis sé snjór á jörðinni. Mældu því hæðina frá um 1 metra yfir jörðu og upp fyrir neyðaropið og veldu stiga sem nær þeirri lengd. JOMY ICELANDER fæst í fimm lengdum:

Lengd Hentar til dæmis fyrir
2,5 m (þessi stigi) Upphækkaða jarðhæð, lágar svalir og ris í sumarhúsum
3 m Svalir og efri hæð í lágreistum húsum
4 m Aðra hæð í flestum einbýlis- og raðhúsum
5 m Háa aðra hæð, hús á háum grunni eða í halla
6 m Hærri byggingar og svalir þar sem langt er niður á jörð

Ef þú ert í vafa er velkomið að hringja í okkur í síma 554 1888 eða senda póst á info@dalberg.is og við aðstoðum við valið. Við bjóðum einnig fleiri gerðir af flótta- og brunastigum og sérsmíðaða stiga fyrir stærri byggingar.

Merktu neyðaropið

Við mælum með að setja skilti við neyðaropið sem sýnir að þar sé flóttastigi, svo allir í húsinu viti hvert á að fara ef eldur kemur upp. Sjálflýsandi skiltin sjást líka í myrkri og reyk. Hentug skilti eru til dæmis Neyðargluggi með flóttastiga, Flóttastigi og Flóttagluggi, og þú getur bætt þeim við pöntunina hér á síðunni.

Helstu kostir

  • Alltaf tilbúinn, fastur á veggnum og ekkert þarf að sækja í neyð
  • Opnast með einu handtaki og fellur út í fulla lengd á augabragði
  • Lokaður að neðan, óviðkomandi geta ekki klifrað upp hann
  • Festur með aðeins fjórum skrúfum, mjög einfaldur í uppsetningu
  • Líkist rennu og má mála í lit hússins
  • Ál og ryðfríar festingar sem þola íslenskt veðurfar
  • Um 20 ára góð reynsla á Íslandi

Tæknilegar upplýsingar

  • Vörunúmer: ICEL2.5
  • Lengd: 2,5 m
  • Festing: 4 skrúfur í vegg
  • Framleiðandi: JOMY SA, Belgíu
  • Gerð: JOMY ICELANDER, byggður á JOMY Sticklift fellistiganum
  • Efni: anóðíserað ál, festingar úr ryðfríu stáli

Vörublað

Sækja bækling um JOMY fellistiga frá JOMY (PDF)

Lýsing á ensku (Original English)

2.5 m JOMY ICELANDER escape ladder, a version of the JOMY retractable fold-out ladder adapted to Icelandic conditions and sold in Iceland for some 20 years. Aluminium construction, permanently mounted on the façade, closes into a slim drainpipe-like column and deploys in seconds when needed.

Tengdar vörur

Nýlega skoðað