P-50 SFF er 6 lítra léttvatnsslökkvitæki í þjónustufríu P-50 línunni frá Britannia Fire í Bretlandi, með froðu sem er laus við flúorefni (PFAS). Það er sérhæft fyrir elda í föstum efnum (A-flokkur), svo sem timbri, pappír og textíl, og hefur háa slökkvigetu, 34A. Tækið hefur staðist EN 3 prófun fyrir notkun á rafbúnað undir spennu að 1000 V. Það hentar vel á skrifstofur, í skóla, hótel og íbúðarhúsnæði. Tækið þarf ekki árlega þjónustu í 10 ár.
Helstu kostir
- Engin árleg þjónusta í 10 ár – hvorki þjónustusamningur né árleg heimsókn þjónustuaðila. Framleiðandinn gerir aðeins kröfu um einfalda árlega sjónskoðun sem starfsmaður getur gert sjálfur.
- Engin 5 ára losunarprófun – samkvæmt framleiðanda fellur hún niður með P-50.
- Slökkvigeta 34A – hærri A-geta en hjá P-50-ECO; fyrir elda í timbri, pappír, textíl og öðrum föstum efnum.
- Flúorfrí froða – engin PFAS-efni sem safnast upp í umhverfinu.
- Prófað á rafbúnað – staðist EN 3 prófun að 1000 V í 1 m fjarlægð.
- Ekkert duft – minni hreinsun og minna tjón á búnaði.
- Ryðfrír kútur – innri kútur úr HDPE-plasti vafinn aramíðtrefjum (Kevlar®); tveir segulmælar.
Athugið: P-50 SFF er ekki ætlað á elda í eldfimum vökvum (B) eða matarolíu (F). Þar sem slík eldhætta er til staðar, t.d. í eldhúsum eða verkstæðum, hentar P-50-ECO (27A/144B/25F) betur.
Tæknilegar upplýsingar
- Vörunúmer: BRI-P50SFF (gerð P50-SFF)
- Slökkviefni: 6 L PFAS-frí froða í UV-meðhöndluðu, afjónuðu vatni
- Slökkvigeta: 34A
- Rafbúnaður: staðist EN 3 prófun að 1000 V í 1 m fjarlægð
- Þyngd fullhlaðið: 8,5 kg
- Mál: hæð 570 mm, þvermál 178 mm
- Vinnuhitastig: +5 til +60 °C (ekki frostþolið)
- Vinnuþrýstingur: 12 bör við 20 °C
- Tæmingartími: 40 sekúndur
- Kastlengd: 4+ m
- Staðlar/vottun: EN 3, BSI Kitemark, UKCA og PED
- Ábyrgð: 10 ár frá framleiðanda
- Framleitt í Bretlandi
Árleg sjálfsskoðun – svona virkar „þjónustufrítt“
Í stað árlegrar þjónustu fer starfsmaður yfir tækið einu sinni á ári samkvæmt leiðbeiningum Britannia Fire:
- Athuga að öryggispinni og innsigli séu á sínum stað og að tækið sé óskemmt.
- Athuga að báðir þrýstimælar sýni grænt og prófa þá með seglinum sem fylgir í botni tækisins – nálin á að hreyfast og falla aftur á grænt.
- Staðfesta aldur tækisins með litakóðuðum pinna í botni.
- Skrá skoðunina og kvitta á tækið með varanlegum penna.
Ef mælir sýnir rautt eða innsigli vantar er haft samband við Dalberg. Eftir 10 ár fer tækið í eina yfirhalningu hjá framleiðanda og líftíminn er alls 20 ár. Ábyrgð framleiðanda miðast við að tækið sé sett upp og viðhaldið samkvæmt leiðbeiningum hans og nær ekki til skemmda eða rangrar meðferðar.
Hvar liggur sparnaðurinn? Hefðbundin slökkvitæki eru yfirleitt yfirfarin árlega af þjónustuaðila og þurfa reglulega losunarprófun og endurhleðslu. Með P-50 fellur sá kostnaður niður í 10 ár – eftir stendur árleg skoðun sem tekur starfsmann nokkrar mínútur. Því fleiri tæki sem eru á staðnum, því meira munar.
Hentar fyrir
Skrifstofur, skóla, leikskóla, hótel, gistiheimili, fjölbýlishús, stigaganga og heimili – upphituð rými þar sem eldhættan stafar helst af föstum efnum eins og húsgögnum, pappír og textíl.
Áfyllingar og fylgihlutir
Skápa og standa fyrir slökkvitæki má finna í flokknum Skápar og standar fyrir slökkvitæki.
Vörublað
Sækja vörublað frá Britannia Fire (PDF)
Lýsing á ensku (Original English)
P50-SFF PFAS-free foam extinguisher, 6 litres. Fire rating 34A – extinguishes Class A (carbonaceous) fires such as wood, paper and textiles. UV-treated de-ionised water with PFAS-free foam – no fluoro chemicals. Passed the EN3 test for use on live electrical equipment up to 1000 V. No external service required: a simple annual inspection the business can carry out itself. Full weight 8.5 kg, height 570 mm, diameter 178 mm, operating temperature +5 to +60 °C, discharge 40 seconds, range 4+ m. BSI Kitemark, UKCA, EN3 and PED. 10-year guarantee.





