T-ONE Medi Pro er 4 rása raförvunartæki fyrir sjúkraþjálfun, endurhæfingu og stofur. Það býður upp á rafmeðferð (TENS og EMS) og jónófóresu og hentar þeim sem þurfa að meðhöndla mörg svæði í einu.
Helstu eiginleikar
- 4 sjálfstæðar rásir
- TENS verkjameðferð og EMS vöðvaörvun
- Jónófóresa
- Lækningatæki, CE-flokkur IIa
Hentar við
Endurhæfingu, verkjameðferð og vöðvaþjálfun á stofu eða í sjúkraþjálfun.
Afhending
Afhendingartími: 6–8 virkir dagar.
Hvað er TENS?
TENS (raftaugaörvun um húð) sendir væga rafpúlsa í gegnum elektróður (rafskaut eða blöðkur) og getur dregið úr verkjaskynjun. EMS (raförvun vöðva) lætur vöðvana dragast saman og nýtist til styrkingar og endurheimtar. Sjá öll TENS tæki og elektróður.
Ekki fyrir fólk með gangráð eða önnur ígrædd raftæki. Barnshafandi og fólk með flogaveiki ráðfæri sig við lækni fyrst. Lesið leiðbeiningar fyrir notkun.
Vörulýsing á ensku
T-ONE MEDI PRO - 4 channel electrotherapy

