Vöruflokkar
Hraðpróf og sjálfspróf
26 vörur
Sýnir 1–26 af 26 vöru
Hraðpróf gefa skjóta vísbendingu um ástand heilsunnar, með niðurstöðu á nokkrum mínútum. Hjá Dalberg færðu bæði sjálfspróf til notkunar heima og hraðpróf fyrir heilsugæslur, læknastofur, apótek og vinnustaði.
Hvaða próf hentar?
- COVID og inflúensa: mótefnavakapróf úr nefi eða munnvatni, bæði sem sjálfspróf og til faglegrar notkunar.
- CRP próf: mælir bólgu í líkamanum og hjálpar að greina á milli veiru- og bakteríusýkingar.
- Strep A: skjót greining á streptókokkasýkingu í hálsi.
- Helicobacter pylori: skimun fyrir bakteríu sem getur valdið magabólgu og magasári.
- Þungunarpróf: heimapróf, líka stafrænt. Sjá einnig egglospróf og þungunarpróf.
- Fíkniefna- og áfengispróf: þvagpróf fyrir 7 til 16 efni og áfengisstrimlar fyrir munnvatn, t.d. fyrir vinnustaði.
- Þvaggreining: sjá þvagstrimla og þvaggreiningu.
Lestu meira í greininni Sjálfspróf heima.
Algengar spurningar
Eru sjálfspróf jafn nákvæm og próf hjá lækni?
Hraðpróf eru áreiðanleg þegar leiðbeiningum er fylgt, en þau koma ekki í stað læknisskoðunar. Ef niðurstaðan er jákvæð eða einkenni halda áfram skaltu hafa samband við heilsugæsluna.
Hver er munurinn á sjálfsprófi og prófi til faglegrar notkunar?
Sjálfspróf eru gerð til að almenningur geti notað þau heima. Próf merkt fagleg notkun eru ætluð heilbrigðisstarfsfólki.
Seljið þið próf í magni?
Já. Við bjóðum magnverð fyrir heilsugæslur, læknastofur, apótek og vinnustaði.
Viltu magnverð? Sendu okkur línu á sala@dalberg.is eða hringdu í 554 1888. Við sendum um allt land.



































