Flóttastigar og stigar frá Jomy og Stegerud

Flóttastigar, brunastigar, fellistigar, stigar með búri, hringstigar og pallastigar úr áli og stáli. Kauptu JOMY ICELANDER flóttastiga, framleidda fyrir íslenskar aðstæður, beint í vefversluninni eða fáðu tilboð í sérsmíði.

Umboðsaðili á Íslandi fyrir

Jomy lógó Stegerud Steel lógó
Flóttaleið með pallastiga og svölum á íbúðarhúsi
Flóttaleið með pallastiga á íbúðarhúsi
  • 20+ árJOMY ICELANDER flóttastigar seldir á Íslandi
  • Síðan 1968Jomy hefur framleitt öryggislausnir úr áli í Belgíu
  • Síðan 1995Stegerud hefur smíðað stálstiga í Svíþjóð
  • -40 °CJOMY stigar prófaðir í miklu frosti og raka

JOMY ICELANDER flóttastigar

ICELANDER er JOMY flóttastigi framleiddur fyrir íslenskar aðstæður: rok, slyddu, frost og seltu. Hann hefur verið seldur hér á landi í yfir 20 ár og reynslan af honum er einstaklega góð.

Stigarnir eru endingargóðir, traustir og einstaklega einfaldir í uppsetningu. Þeir fást í þremur stöðluðum hæðum. Þú pantar í vefversluninni og við sendum um allt land.

Kona fer niður JOMY flóttastiga við glugga á timburhúsi
JOMY flóttastigi opnaður við glugga

Hvaða hæð þarf ég?

Stiginn nær um 2,25 m upp fyrir efsta útgöngustaðinn svo auðvelt sé að stíga út á hann. Mældu hæðina frá jörðu upp að neðri brún efsta glugga eða svalagólfi og bættu 2,25 m við. Ef þú ert ekki viss hjálpum við þér að velja.

Hvernig heildarhæð flóttastiga er fundin ABCB ≈ 2,25 m
A = hæð efsta útgöngustaðar, B = um 2,25 m, C = heildarhæð stigans

4 m

JOMY ICELANDER flóttastigi, 4 metrar

144.956 kr

Nánar

 

5 m

JOMY ICELANDER flóttastigi, 5 metrar

185.876 kr

Nánar

 

6 m

JOMY ICELANDER flóttastigi, 6 metrar

253.556 kr

Nánar

 

Allar vörur í vefversluninni

Sjá allar vörur í flokknum

Framleiðendurnir okkar

Við höfum selt JOMY stiga á Íslandi í yfir 20 ár og eigum langt og gott samstarf við bæði Jomy og Stegerud. Þetta eru traust evrópsk fyrirtæki sem hafa sérhæft sig í stigum og öryggislausnum í áratugi.

Jomy, Belgíu

Síðan 1968

Belgískt fyrirtæki sem hefur hannað og framleitt öryggislausnir úr áli í meira en hálfa öld. JOMY fellistigar, flóttastigar, stigar með búri og pallastigar eru á yfir 20.000 byggingum um allan heim.

JOMY ICELANDER flóttastiginn er framleiddur fyrir íslenskar aðstæður og hefur reynst afar vel hér á landi.

Skoða JOMY stiga

Stegerud Steel, Svíþjóð

Síðan 1995

Sænskt fyrirtæki í Varberg sem hefur smíðað stálstiga, hringstiga, palla og gallerdurk í yfir 30 ár. Öll framleiðsla fer fram í eigin verksmiðju í Svíþjóð.

Stálstigarnir eru varmgalvaniseraðir og CE-merktir samkvæmt EN 1090 og henta vel í íslensku veðurfari.

Skoða Stegerud stiga

Allt úrvalið

Allt frá einföldum flóttastiga á einbýlishús upp í stigaturna, hringstiga og heildarlausnir fyrir iðnað.

Sýna:

Flóttastigar og fellistigar Jomy, Belgíu

Stigar sem eru faldir eða lokaðir í daglegri notkun en opnast á augabragði í neyð.

JOMY fellistigi lokaður upp við múrsteinsframhlið

Jomy

JOMY fellistigi og ICELANDER

  • Flótti
  • Aðgengi
  • Kaupa á netinu

Flóttastigi sem lokast saman í súlu á stærð við niðurfallsrör, um 10 x 10 cm. Eitt handtak opnar hann á öllum hæðum í einu. Innbrotsheldur, því yfirleitt er ekkert opnunarhandfang á jarðhæð. ICELANDER útgáfan er framleidd fyrir íslenskar aðstæður.

Allt að 30 m. Mini-JOMY allt að 15 m.

Skoða vöru
JOMY útdraganlegur flóttastigi á framhlið múrsteinshúss

Jomy

Útdraganlegir stigar

  • Flótti
  • Aðgengi

Stigar sem fara lítið fyrir þegar þeir eru ekki í notkun en eru tilbúnir á augabragði þegar á þarf að halda.

Skoða vöru

Jomy

JOMY-Stick færanlegur stigi

  • Aðgengi

Samanbrjótanlegur stigi sem auðvelt er að geyma og flytja. Aðeins 64 x 48 mm í þvermál þegar hann er lokaður.

Skoða vöru
3 mJOMY stigi með búri og neðri hluta sem fellur niður með mótvægi

Jomy

Fellistigar með mótvægi

  • Flótti
  • Aðgengi

Innbrotsheld lausn þar sem allt að 3 m svæði undir stiganum er frítt. Mótvægi tryggja mjúka opnun og hægt er að losa stigann ofan frá eða neðan frá.

Skoða vöru
Flóttastigar milli svala á hóteli við sjó

Jomy

Stigar fyrir svalir

  • Flótti

Flóttaleið af svölum niður á jörð eða á milli hæða, fest við svalahandrið eða framhlið.

Skoða vöru

Jomy

Stigar gegnum gólf svala

  • Flótti

Fyrir byggingar þar sem svalir eru hver yfir annarri. Innbyggður útdraganlegur stigi flytur fólk af einum svölum á næstu.

Skoða vöru

Jomy

Aðgangssvalir

  • Flótti
  • Aðgengi

Álsvalir sem veita örugga leið að stiganum þegar hann er of langt frá glugga eða þegar hættulegt er að fara út af þakbrún.

Fá tilboð

Fastir stigar og aðgengi Jomy, Belgíu

Hár álstigi með búri á framhlið iðnaðarhúss

Jomy

Álstigar með búri

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Varanleg flótta- og aðgengisleið í iðnaðargæðum með öryggisbúri sem ver gegn falli. Fást með hvíldarpöllum á háum byggingum.

Skoða vöru

Jomy

Stigar með öryggislínu

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Fastur álteinn með sleða sem notandinn festir sig í. Sleðinn læsist ef fólk fellur, svo búr er óþarft.

Skoða vöru

Jomy

Álstigar utan á hús án búrs

  • Aðgengi

Fastir stigar án búrs fyrir aðgengi að þökum, brunnum, göngubrúm og vélum.

Skoða vöru
JOMY brunnstigi með útdraganlegu handfangi

Jomy

Brunnstigar

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Álstigar með útdraganlegum handföngum til að fara niður í brunna, ræsi og göng.

Skoða vöru

Jomy

Rennistigar á þök

  • Aðgengi

Stigar sem renna eftir þakinu fyrir örugga vinnu og viðhald á hallandi þökum.

Fá tilboð

Jomy

Skipsstigar

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Brattir stigar, fastir, færanlegir, stillanlegir eða uppfellanlegir á gasfjöðrum samkvæmt EN ISO 14122-3.

Fá tilboð

Pallastigar, stigaturnar og sérsmíði Jomy, Belgíu

Pallastigi og stigaturn úr áli á skrifstofuhúsi

Jomy

JOMY pallastigar

  • Flótti

Stigar úr léttu áli eru ákjósanlegasta leiðin þegar margir þurfa að komast út í einu. Fást sem stakir stigar eða heilir stigaturnar, inni og úti.

Skoða vöru

Jomy

Stigar með uppfellanlegum neðsta hluta

  • Flótti

Neðsti hluti stigans lyftist upp þegar hann er ekki í notkun. Það losar pláss undir stiganum og gerir hann innbrotsheldan.

Fá tilboð
Sérsmíðaður stigaturn með klæðningu á stóru fjölbýlishúsi

Jomy

Sérsmíðaðir álstigar

  • Flótti
  • Aðgengi
  • Iðnaður

Stigar, stigaturnar, pallar og aðgengislausnir hannaðar eftir aðstæðum og teikningum, í samvinnu við arkitekta og verkfræðinga Jomy.

Skoða vöru

Stálstigar og hringstigar Stegerud Steel, Svíþjóð

Stegerud Steel smíðar stálstiga, hringstiga, palla og handrið í eigin verksmiðju í Varberg í Svíþjóð.

Galvaniseraður Stegerud hringstigi að dyrum á iðnaðarhúsi

Stegerud

Stegerud hringstigar

  • Flótti
  • Aðgengi

Hringstigar úr stáli sem spara gólfpláss, inni og úti. Hver stigi er smíðaður í Varberg, settur saman til prufu fyrir afhendingu og sniðinn að málum verksins.

Þvermál 1.200 til 2.600 mm, þrepdýpt minnst 250 mm í gönguleið

Skoða vöru
Svartur stálstigi utanhúss með handriði

Stegerud

Beinir stálstigar

  • Flótti
  • Aðgengi
  • Iðnaður

Varmgalvaniseraðir eða málaðir stálstigar fyrir iðnað og opinberar byggingar, CE-merktir samkvæmt EN 1090. Afhentir sem heill samsetningarpakki.

Í boði: RAL-litur, eikar- eða beykiþrep, LED-lýsing og hitastrengur í þrepum

Fá tilboð
Stigi með búri gegnum pall úr gallerdurk

Stegerud

Pallar, gallerdurkur og handrið

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Gallerdurkur, pallar, rampar og einingahandrið úr stáli, áli eða ryðfríu stáli sem fullkomna stigann.

Fá tilboð

Iðnaðaraðgengi Jomy, Belgíu

Skoðunarpallur úr áli undir járnbrautarbrú

Jomy

Göngubrýr og skoðunarpallar

  • Iðnaður

Fastar, upphengdar eða sjálfberandi göngubrýr og pallar fyrir örugga leið í hæð, til dæmis undir brúm.

Fá tilboð
Hæðarstillanlegur JOMY vinnupallur á hjólum

Jomy

Vinnupallar

  • Iðnaður

Fastir og færanlegir pallar, einnig hæðarstillanlegir á hjólum.

Fá tilboð

Jomy

Yfirgangar

  • Iðnaður

Stigar og pallar sem leiða fólk yfir lagnir, vélar og aðrar hindranir.

Fá tilboð
Gönguleiðir og handrið úr áli á verksmiðjuþaki

Jomy

Fallvarnir, gönguleiðir og handrið

  • Aðgengi
  • Iðnaður

Handrið á þakbrúnir, gönguleiðir á þökum, línukerfi og annar fallvarnarbúnaður úr áli.

Fá tilboð
Færanlegur JOMY stigi og pallur við tankbíl

Jomy

Stigar fyrir tankbíla

  • Iðnaður

Færanleg og hæðarstillanleg aðgengislausn til að vinna ofan á farmi og tönkum.

Fá tilboð

Verkefni og dæmi

Flóttastigar, stigar með búri, hringstigar og pallar frá Jomy og Stegerud í notkun. Smelltu á mynd til að sjá hana stærri.

Stigaturn sem flóttaleið á múrsteinshúsi
Stigaturn sem flóttaleið á múrsteinshúsi
Pallastigi upp á svalir íbúðarhúss
Pallastigi upp á svalir íbúðarhúss
Stigi með búri og hvíldarpöllum
Stigi með búri og hvíldarpöllum
Málaður Stegerud hringstigi innanhúss
Málaður Stegerud hringstigi innanhúss
JOMY flóttastigi á háu fjölbýlishúsi
JOMY flóttastigi á háu fjölbýlishúsi
Stigar með búri á sílóum
Stigar með búri á sílóum
Stegerud hringstigi utan á turni
Stegerud hringstigi utan á turni
Göngupallur og stigi við skóla
Göngupallur og stigi við skóla
Vinnupallar í iðnaðarhúsi
Vinnupallar í iðnaðarhúsi
Stegerud hringstigi við skóla
Stegerud hringstigi við skóla
Brunnstigi úr áli
Brunnstigi úr áli
Galvaniseraður Stegerud hringstigi
Galvaniseraður Stegerud hringstigi
Svartur Stegerud hringstigi
Svartur Stegerud hringstigi
Stigaturn og svalir á íbúðarhúsi
Stigaturn og svalir á íbúðarhúsi
JOMY fellistigi opnaður í notkun

Hvaða stigi hentar?

Lausn Hentar fyrir Hæð eða stærð Helsti kostur
JOMY ICELANDER Flótta af íbúðum, skólum og minni byggingum 4, 5 og 6 m á lager Framleiddur fyrir íslenskar aðstæður, einfaldur í uppsetningu
JOMY fellistigi Flótta og aðgengi í fjölbýli, skólum, hótelum og skrifstofum Allt að 30 m Lítur út eins og niðurfallsrör og er innbrotsheldur
Stigi með búri Fast aðgengi að þökum, sílóum og vélum Eftir verki Búrið ver gegn falli
Stigi með öryggislínu Viðhald og aðgengi í hæð Eftir verki Grípur fall án búrs
Fellistigi með mótvægi Aðgengi þar sem frítt þarf að vera undir Allt að 3 m frítt undir Opnaður ofan frá eða neðan frá
Pallastigi og stigaturn Flótta margra í einu Eftir verki Öruggasta flóttaleiðin fyrir hópa
Stegerud hringstigi Þar sem gólfpláss er lítið, inni og úti Þvermál 1,2 til 2,6 m Sparar pláss, sniðinn að málum

Byggðir fyrir íslenskt veðurfar

Flóttastigi þarf að virka á versta degi ársins, í frosti, slyddu og roki, jafnvel eftir mörg ár án notkunar.

  • Framleiddir fyrir Ísland. JOMY ICELANDER er framleiddur fyrir íslenskar aðstæður og hefur reynst mjög vel hér á landi í yfir 20 ár.
  • Prófaðir í frosti. JOMY stiginn og opnunarbúnaðurinn hafa verið prófaðir við allt að -40 °C og mikinn raka.
  • Ál sem ryðgar ekki. JOMY stigar eru úr anodíseruðu sjávarþolnu áli og endast í yfir 30 ár.
  • Galvaniserað stál. Stálstigar Stegerud eru varmgalvaniseraðir. Þrep úr gallerdurk hleypa snjó og vatni í gegn og hitastrengur í þrepum er í boði.
  • Burðarþol. Hvert þrep á JOMY stiga ber yfir 450 kg og stoðirnar yfir 5.000 kg.

Flóttaleiðir og brunastigar

Hvenær þarf flóttastiga?

Þegar ekki er hægt að komast út um stigagang í bruna þarf önnur flóttaleið að vera til staðar, til dæmis af svölum eða út um glugga. Flóttastigi eða brunastigi utan á húsi er þá oft einfaldasta og ódýrasta lausnin, bæði í nýbyggingum og eldri húsum.

Fellistigi eða fastur stigi?

Fellistigi er lokaður upp við vegginn og sést varla, en opnast á öllum hæðum með einu handtaki. Fastur stigi með búri eða öryggislínu hentar betur þar sem fólk fer reglulega upp, til dæmis á þök. Pallastigar og stigaturnar henta þar sem margir þurfa að komast út í einu.

Samþykki og kröfur

Kröfur slökkviliðs og byggingaryfirvalda geta verið ólíkar eftir byggingum. Við útvegum teikningar og tæknigögn frá Jomy og Stegerud til að leggja fyrir hönnuði, húsfélög og yfirvöld.

Fyrir hönnuði og verktaka

Við útvegum teikningar, tæknigögn og verklýsingar frá framleiðendunum og aðstoðum við val á lausn sem uppfyllir kröfur verksins.

  • Festingar. JOMY stigi er festur á 1,5 m fresti, eða á 3 m fresti með styrktarprófíl. Mini-JOMY er festur á 1 m fresti.
  • Burðarþol. JOMY: 450 kg á þrep og 5.000 kg á stigann. Mini-JOMY: 350 kg á þrep og 2.500 kg á stigann.
  • Litir og aukabúnaður. RAL-litur, aðgangssvalir, hengilás, opnunarskynjari tengdur hússtjórnarkerfi og öryggislína.
  • Stálstigar. Stegerud framleiðir samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og EN 1090-1 og getur útbúið þrívíddarlíkan af stiganum á hönnunarstigi.
Forsíða bæklings Dalbergs um stiga og flóttastiga

Bæklingurinn okkar

Yfirlit yfir stiga, flóttastiga og aðrar aðgengislausnir sem við bjóðum.

Skoða bæklinginn

Fáðu tilboð í stiga

Sendu okkur mál, teikningar eða myndir af staðnum og við finnum réttu lausnina.

  1. Mál, teikningar eða myndir
  2. Tillaga og tilboð
  3. Framleiðsla hjá Jomy eða Stegerud
  4. Afhending um allt land

sala@dalberg.is
Sími 554 1888, virka daga 9 til 17
Kleppsmýrarvegi 8, Reykjavík

Takk, fyrirspurnin er komin til okkar. Við höfum samband fljótlega.

Algengar spurningar um flóttastiga

Hvað er JOMY ICELANDER?

ICELANDER er JOMY flóttastigi framleiddur fyrir íslenskar aðstæður. Hann hefur verið seldur hér á landi í yfir 20 ár með einstaklega góðri reynslu. Stigarnir eru endingargóðir, traustir og einstaklega einfaldir í uppsetningu.

Get ég keypt flóttastiga á netinu?

Já. JOMY ICELANDER flóttastigarnir fást í 4, 5 og 6 metra hæð í vefversluninni og við sendum þá um allt land. Fyrir hærri byggingar, stiga með búri, hringstiga og sérsmíði gerum við tilboð.

Hvaða hæð á flóttastiginn að vera?

Stiginn nær um 2,25 m upp fyrir efsta útgöngustaðinn, svo auðvelt sé að stíga út á hann. Heildarhæðin er því hæð efsta útgöngustaðar frá jörðu að viðbættum 2,25 m. Hafðu samband ef þú ert ekki viss og við hjálpum þér að velja.

Hver er munurinn á flóttastiga og brunastiga?

Orðin eru oft notuð um það sama: stiga utan á húsi sem fólk notar til að komast út þegar stigagangur er lokaður vegna bruna. Það getur verið fellistigi, fastur stigi eða pallastigi eftir aðstæðum.

Er hægt að opna flóttastigann utan frá?

Yfirleitt ekki. Þegar stiginn er ætlaður til flótta er ekkert opnunarhandfang á jarðhæð, svo óviðkomandi geta ekki opnað hann. Ef hann er notaður til aðgengis má hafa handfang á jarðhæð með hengilás.

Þola stigarnir íslenskt veður?

Já. JOMY ICELANDER er framleiddur fyrir íslenskar aðstæður og JOMY stigar hafa verið prófaðir við allt að -40 °C og mikinn raka. Stálstigar Stegerud eru varmgalvaniseraðir og fást með hitastreng í þrepum gegn snjó og ís.

Hverjir framleiða stigana?

Álstigarnir koma frá Jomy í Belgíu, sem hefur framleitt öryggislausnir úr áli síðan 1968. Stálstigar og hringstigar koma frá Stegerud Steel í Varberg í Svíþjóð, sem hefur smíðað stálstiga síðan 1995. Við höfum átt langt og gott samstarf við bæði fyrirtækin.

Hver er munurinn á stiga með búri og stiga með öryggislínu?

Búrið umlykur stigann og ver fólk gegn falli. Á stiga með öryggislínu er fastur teinn sem notandinn festir sig við með sleða sem læsist ef hann fellur. Öryggislínan er sífellt oftar valin í stað búrs.

Hvað þarf hringstigi mikið pláss?

Stegerud hringstigar eru yfirleitt frá 1.200 upp í 2.600 mm í þvermál. Þeir eru smíðaðir eftir málum hvers verks.

Hvaða kröfur gilda um flóttaleiðir?

Kröfur slökkviliðs og byggingaryfirvalda geta verið ólíkar eftir byggingum og aðstæðum. Við útvegum tæknigögn og teikningar frá framleiðendum til að leggja fyrir hönnuði og yfirvöld.

Aðrar byggingalausnir